Magnað viðtal við Ingmar Bergman í bandarískum sjónvarpsþætti árið 1971

Vídjó

Sænski kvikmyndaleikstjórinn Ingmar Bergman (1918-2007) mætti árið 1971 í viðtal hjá Dick Cavett sem stjórnaði vinsælum þætti á áttunda áratugnum. Cavett ferðaðist til Svíþjóðar fyrir viðtalið.

 

Bergman fer yfir víðan völl og ræðir um barnæsku sína af hispursleysi og um lífið í Svíþjóð á uppvaxtarárunum. Hann segir til dæmis frá valdapíramídanum sænska: „Guð var… [Lesa meira]

Hvíta eldingin: Danssnillingurinn og límsniffarinn Jesco White

Jesco White betur þekktur sem „Dansandi útlaginn“ er bandarískur skemmtikraftur, fjalladansari og költfígúra. Hann er hvað þekktastur í Bandaríkjunum fyrir að vera umfjöllunarefni heimildarmyndanna: Dancing Outlaw, Dancing Outlaw II: Jesco Goes to Hollywood og The Wild and Wonderful Whites of West Virginia. Árið 2009 var einnig gerð leikin mynd um ævintýri Jesco, ber hún heitið White Lightnin’.

 

Jesco fæddist í Bandytown,… [Lesa meira]

Mohandas Gandhi, lögmaður, árið 1893

Indverska frelsishetjan Gandhi starfaði sem lögmaður í Natal-nýlendunni í Suður-Afríku á síðasta áratug nítjándu aldar. Hér sjáum við hann í lögmannsbúningnum. Ljósmynd frá 1893.

 

Þegar Gandhi kom til Suður-Afríku, þá 24 ára gamall, hafði hann eflaust ekki í hyggju að staldra lengi við. Hann var ungur maður á uppleið, af góðum ættum og vel menntaður. Hann bókaði sér far með lest… [Lesa meira]

Hver (og hvað) drap Yasser Arafat?

Vídjó

Árið 2004 veiktist Palestínuleiðtoginn Yasser Arafat skyndilega og lést skömmu síðar, 75 ára að aldri. Ekki virðist þó allt hafa verið með felldu. Margt bendir til þess að geislavirki þungamálmurinn pólóníum hafi dregið hann til dauða. Aðeins leyniþjónustur kjarnorkuríkja þykja líklegar til þess að geta orðið sér úti um þetta fágæta frumefni í… [Lesa meira]

Rokk í Argentínu á dögum herforingjastjórnarinnar: „Risaeðlurnar munu hverfa“

Vídjó

Charly Garcia er einn þekktasti tónlistarmaðurinn í Argentínu. Hann er rúmlega sextugur og á áratugalangan feril að baki sem ein helsta stjarnan þar í landi. Hann var tiltölulega nýkominn á sjónarsviðið hinn 24. mars 1976 þegar herforingjastjórn rændi völdum í Argentínu.

 

Jorge Rafael Videla leiddi þessa ógnarstjórn sem átti eftir að koma um… [Lesa meira]

Frá Akranesi árið 1938

Árni Böðvarsson tók þessa mynd árið 1938 og birtist hún á forsíðu Fálkans með þessum orðum: „Fyrir þrennt hefur Akranes löngum verið talið frægt: Hrausta sjómenn, fallegt kvenfólk og ágætar kartöflur. Þeir sem kunnugir eru á Akranesi munu sannfærast um að þetta sje rjett mat á plássinu. Árni Böðvarsson Ijósmyndari á Akranesi tók myndina og sjer á henni inn eftir… [Lesa meira]