Marinière: Bretónsku sjóliðapeysurnar sem urðu að tískutákni

Það kannast eflaust allir við marinière-peysurnar, röndóttu sjóliðapeysurnar sem eru fyrir löngu orðnar að tískutákni. Peysurnar eru jafnan kenndar við bæinn Saint James sem er staðsettur milli Bretagne og Normandí í Frakklandi, og eru því stundum kallaðar bretónapeysur.

 

Franskur sjóliði árið 1910.[Lesa meira]

Magnaðar myndir af NATO-mótmælunum við Austurvöll 1949

Árið 1949 samþykkti ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar aðild Íslands að Norður-Atlantshafsbandalaginu. Ákvörðunin var mjög umdeild á sínum tíma, og fjöldi manns safnaðist saman við Austurvöll þann 30. mars í mótmælaskyni. Eins og frægt er, kom til harðvítugra átaka milli andstæðinga samningsins, lögreglu og stuðningsmanna… [Lesa meira]

Frábær nýr lemúr er kominn í ljós

Sjáið þessa fögru, frábæru skepnu. Þetta er glæný lemúrategund, áður óþekkt: Lavasóa-dverglemúr (Cheirogaleus lavasoensis).

 

Lavasóa-dverglemúrinn hefur auðvitað verið til lengi, og er ekki „nýr“ í öðrum skilningi en að við mennirnir, sem sækjumst eftir því að skilgreina lemúra heimsins í flokka og tegundir, vissum ekki fyrr en nú af tilvist hans og sérstöðu.

 

Eins og dyggir lesendur vita eru til meira en… [Lesa meira]

Thomas Quick: Sænski raðmorðinginn sem myrti engan

Í rúma tvo áratugi hefur illræmdasta raðmorðingja í sögu Norðurlandanna verið haldið innan veggja réttargeðdeildarinnar í Säter í Svíþjóð. Quick hefur í gegnum tíðina gengist við fjölda ódæðisverka og lýst hrottalegri meðferð á fórnarlömbum sínum, nauðgunum og mannáti fyrir hverjum þeim sem vildi heyra. Það merkilegasta við sögu þessa þekktasta glæpamanns Svíþjóðar er að hann virðist ekki hafa framið neitt… [Lesa meira]

Gleymd en ekki grafin: Ótrúleg saga Vashti Bunyan

Oft vill það verða svo að listamenn fá ekki verðskuldaða athygli og viðurkenningu fyrr en eftir að þeir eru komnir í gröfina. Jafnvel popptónlistarmenn. Jim Morrison og hljómsveit hans The Doors hefur líklega aldrei verið vinsælli en í dag. Það sama má segja um Bob Marley. Enginn hefur þó „hagnast“ jafnmikið á dauða sínum og Jeff heitinn Buckley, nú,… [Lesa meira]

New York í lit um aldamótin 1900

Stærsta bókasafn í heimi, Library of Congress í Bandaríkjunum, hefur birt þessar glæsilegu litmyndir af New York City frá aldamótunum 1900. Neðst á myndunum má sjá upplýsingar um nákvæmari staðsetningu.

 

290

 

372… [Lesa meira]