Valdaránið í Chile og Victor Jara

Í dag eru 40 ár síðan herforingjastjórn Augustos Pinochets rændu völdum í Chile, þann 11. september árið 1973. Á dramatískan hátt var lýðræðislegri ríkisstjórn Salvador Allende steypt af stóli og lauk þar með 48 ára lýðræðistímabili í sögu Chile.

 

Á sama tíma og sprengjum rigndi yfir forsetahöllina La Moneda í Santiago, flutti Allende síðasta ávarp sitt til chílesku þjóðarinnar.

 

Alþýða lands míns,… [Lesa meira]

Þegar Conan O’Brien heimsótti Þýskaland og komst að því að þætti hans hafði verið stolið

Þýskaland. Fæðingarstaður Bach og Beethoven. Goethe og Schiller. Nietzsche  og Schopenhauer. Bauhaus og Rothaus. Já, Evrópsk menning væri öllu fátækari ef ekki væri fyrir blessuð súrkálin. Þó ná yfirburðir Þjóðverja á menningarsviðinu ekki til allra þátta þess eins og bandaríski grínistinn og spjallþáttastjórnandinn Conan O’Brien komst að.

 

Árið 1997 ákvað Conan að heimsækja Kölnarborg, vöggu þýskrar raftónlistar og þar sem ljósi bjórinn Kölsch… [Lesa meira]

Borgarstjóri stjórnar umferð í Austurstræti sumarið 1925

„Skemmtiferðaskip komu sem oftar til Reykjavíkur sumarið 1925. Umferð stórjókst svo að til vandræða horfði. Þá var Knud Zimsen borgarstjóri og sá að við svo búið mátti ekki standa.“ Úr bók­inni Reykjavík, sögu­staður við sund eftir Pál Líndal. Ljósmyndir eftir Loft Guðmundsson. Borgarstjórar nútímans mættu leika þetta eftir.

 

Hér sést Oddur sterki af Skaganum, „alkunnur persónuleiki“ í Reykjavík, ræða við borgarstjóra um umferðarreglurnar.… [Lesa meira]

Skólapiltar í Austurstræti árið 1886

Skólapiltar í Austurstræti árið 1886. „Skólapiltar settu svip á bæjarlífið og héldu mjög hópinn.“ Úr bókinni Reykjavík, sögustaður við sund eftir Pál Líndal. Ljósmynd eftir Sigfús… [Lesa meira]

Hrottafengin hlið höfuðborgarinnar: Morðkort af Reykjavík

„Reykjavíkurborg á sér fjölmargar hliðar. Alla jafna er hún hlýleg og falleg, lífleg og skemmtileg. En það eru ekki allar þessar hliðar jafn fagrar. Að meðaltali eru framin tvö morð á ári á Íslandi og flest þeirra eru framin í höfuðborginni. Flest eru morðin hrottafengin eins og sjá má á þessari úttekt sem sýnir að fólk er ekki eins óhult… [Lesa meira]

Skugginn í skugganum: George „Shadow“ Morton

Upptökustjórinn og lagahöfundurinn George Morton var kallaður „skugginn.“ Það eru sennilega ekki margir sem þekkja nafn hans í dag, enda stóð skugginn lengst af í skugga annarra upptökustjóra – þá aðallega risavöxnum skugga Phils Spectors.

 

George Morton tróð sér í tónlistarbransann með nokkuð óvenjulegum hætti. Hann var kunningi lagahöfundarins Ellie Greenwich, sem samdi til að mynda eitt besta lag allra tíma,… [Lesa meira]