Leyniskjal NATO um heimsókn Eisenhowers til Íslands

Hér sést Dwight Eisenhower, hershöfðingi og síðar Bandaríkjaforseti, á Reykjavíkurflugvelli ásamt Bjarna Benediktssyni, þáverandi utanríkisráðherra Íslands. Það er 25. janúar árið 1951, og kalda stríðið er í algleymingi. Eisenhower er á þessum tíma yfirmaður Evrópudeildar NATO-varnarsamstarfsins.  Af hverju er hann kominn til landsins og hvað vakir fyrir honum?

 

Tveimur árum áður, þann 30. mars 1949, þrátt fyrir fjöldamótmæli og átök við Austurvöll, hafði Alþingi… [Lesa meira]

Helsta hetja Berlínar: konan sem fann upp Currywurst

Flestir sem hafa heimsótt Berlín, höfuðborg Þýskalands, kannast eflaust við réttinn Currywurst. Fyrir Berlínarbúa er rétturinn orðinn að órjúfanlegum hluta staðbundnar menningar borgarinnar, og gildir þá einu á hvaða aldursbili eða þjóðerni íbúarnir tilheyra. Það elska allir Currywurst, tja, nema þá kannski þeir sem geta ekki snætt réttinn af trúar-eða siðferðisástæðum (gyðingar, múslimar eða grænmetisætur sem dæmi).

 

Currywurst er fullkomið dæmi… [Lesa meira]

Æsileg frásögn: Köttur banar rottuslöngu (Morgunblaðið árið 1914)

Þessi æsilega frásögn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 1914:

 

Atburður sá, er nú skal greindur gerðist í Brasilíu fyrir mörgum árum. Þýzkur blaðamaður skrifar blaði sínu um atvik þetta, og er frásögn hans á þessa leið:

 

„Eg hafði oft heyrt, að til væru kettir, er væru svo áræðnir og fimir að þeir réðust að slöngum og bönuðu þeim, án þess að verða… [Lesa meira]

Dýrabær Orwells og teiknimyndin sem var fjármögnuð af bandarísku leyniþjónustunni

Vídjó

Dýrabær (e. Animal Farm) er eitt af mörgum frábærum verkum enska rithöfundarins George Orwell. Þessi fræga dæmisaga segir frá dýrum á búgarði sem rísa upp gegn oki mannana, reka þá á brott og taka reksturinn í eigin hendur. Svínin, sem eru gáfuðustu dýrin, enda uppi með öll völdin á bænum og sýna brátt alræðistilburði.… [Lesa meira]

Kreppuárin í lit

Á árunum eftir kreppuna miklu var sjálfsmynd Bandaríkjamanna brostin. Stríðsárin sem við tóku höfðu ekki síður áhrif. Þetta er heimur sem við erum ekki vön að sjá í lit og það er eins og við fáum hina gleymdu fortíð beint í æð.

 

Fjórði áratugurinn byrjaði ekki vel í Bandaríkjunum. Kreppan mikla hófst með algeru verðhruni í kauphöllinni í New York í… [Lesa meira]

Teygjustökk varð til eftir umfjöllun David Attenborough um eyjuna Pentecost

Á sjötta áratugnum ferðaðist David Attenborough ásamt tökuliði sínu til eyjunnar Pentecost í Suðurhöfum. Markmiðið var að ná á filmu í fyrsta sinn athöfn sem eyjarskeggjar kalla Gol. Þessar myndir urðu rúmlega tuttugu árum síðar kveikjan að fyrsta nútíma teygjustökkinu.

 

Á hverju ári taka karlmenn á Pentecost-eyju þátt í athöfn sem tengist uppskeruhátíð eyjarskeggja. Athöfnin felst í því að reistur er 20 til… [Lesa meira]