„Reykjavíkurborg á sér fjölmargar hliðar. Alla jafna er hún hlýleg og falleg, lífleg og skemmtileg. En það eru ekki allar þessar hliðar jafn fagrar. Að meðaltali eru framin tvö morð á ári á Íslandi og flest þeirra eru framin í höfuðborginni. Flest eru morðin hrottafengin eins og sjá má á þessari úttekt sem sýnir að fólk er ekki eins óhult… [Lesa meira]
Skugginn í skugganum: George „Shadow“ Morton
Upptökustjórinn og lagahöfundurinn George Morton var kallaður „skugginn.“ Það eru sennilega ekki margir sem þekkja nafn hans í dag, enda stóð skugginn lengst af í skugga annarra upptökustjóra – þá aðallega risavöxnum skugga Phils Spectors.
George Morton tróð sér í tónlistarbransann með nokkuð óvenjulegum hætti. Hann var kunningi lagahöfundarins Ellie Greenwich, sem samdi til að mynda eitt besta lag allra tíma,… [Lesa meira]
Alan Turing og Apple-vörumerkið
Eitt þekktasta vörumerki heims sýnir mynd af epli sem er búið að taka einn bita af. Vörkumerkið, sem er oftar en ekki upplýst aftan á fartölvum, spjaldtölvum, tónhlöðum – já, öllu sem hefur forskeytið „i.“ Hér er vitaskuld átt við vörumerki Apple Computers, verðmætasta fyrirtækis… [Lesa meira]
Jóhannes Birkiland: Má ormurinn líta upp til sólarinnar?
Þegar Jóhannes Birkiland fór í leynilega leigubílferð í Alþingishúsið til að selja bækur og gerði upp auðmýkt við þingforsetann.
Ármann Kr. Einarsson (1915-1999) var einn afkastamesti höfundur barna- og unglingabóka á Íslandi á tuttugustu öld. Árið 1997 gaf hann út sjálfsævisöguna Ævintýri lífs míns, þar sem hann sagði meðal annars frá kynlegum kvistum og furðulegu fólki í Reykjavík. Ármann starfaði sem… [Lesa meira]
Sumac: rauða kryddið sem enginn þekkir
Þeir sem eru á annað borð nógu „hugrakkir“ til að borða á veitingastöðum sem sérhæfa sig í norður-afrískri eða miðausturlenskri matargerð kannast eflaust við að fá rétti sína alla útataða í rauðu kryddi. Salat, hummus, kebap. Allt saman með rauðleitu skýi. Halda margir að hér sé um papriku-eða chiliduft að ræða, en svo er ekki. Hérna er á ferðinni kryddið… [Lesa meira]