2. þáttur: Vonbrigði nasista á Íslandi, Fordlândia og hið dularfulla land Lemúría

Annar þáttur Lemúrsins var á dagskrá Rásar 1. 8. október. Fjallað var um ýmsar útópíur, veraldlegar sem ímyndaðar. Við ferðumst um heiminn en byrjum á Íslandi.

 

Hlustið hér á þáttinn (mp3-​​​​​​skrá hjá hlaðvarpi RÚV).

 

Lemúrinn er á hlaðvarpinu.

 

Umsjónarmenn eru Helgi Hrafn Guðmundsson og Vera Illugadóttir. Lesari er Atli Freyr Steinþórsson.

 

Lemúrinn á vef RÚV.

 

Dr. Werner Gerlach var aðalræðismaður Þýskalands á Íslandi á árum… [Lesa meira]

Magnaðar myndir frá súrrealísku kvöldverðarboði Rothschild-fjölskyldunnar

Rothschild-fjölskyldan er líklega ríkasta fjölskylda í heimi. Margir telja hana jafnvel svo ríka og volduga að hún stjórni í raun öllu sem hún stjórna vill, nema aðeins á bak við tjöldin.

 

Meðlimir Rothschild-fjölskyldunnar hafa í gegnum tíðina hangið með jafnt kóngafólki sem kvikmyndastjörnum og er mál manna að sæmilegt partý hjá Rothschild-fjölskyldunni sé líklega besta partý sem hvaða meðalmaður á eftir… [Lesa meira]

Ung kommúnistastúlka í spænsku borgarastyrjöldinni

Hér sést Marina Ginestá, ungur baráttuliði kommúnista, á þaki Hotel Colón í miðborg Barselóna í júli 1936. Spænska borgarastyrjöldin milli repúblíkana og falangista var þá nýlega hafin, en hún stóð í tæp þrjú ár og kostaði um hálfa milljón manns lífið.

 

Marina er þó enn á lífi. Hún býr í París og er nú komin á… [Lesa meira]

Hei Sally, ekki fara niðrí bæ. Spector mun svíkja þig!

Það er eitthvað óútskýranlega svalt við lagið „Sally Go ‘Round the Roses“ með The Jaynetts. Lagið, sem sló í gegn árið 1963 og komst alla leið í 2. sæti Billboard vinsældalistans, hafði líka ómæld áhrif á þróun popptónlistar. Þá ekki síst í þróun upptökutækni, en það gæti vel verið að það hafi einungis verið fyrir slysni.

BlablablabBlablablab Blablablab Blablablab Blablablab… [Lesa meira]

John Pilger: Ástralski heimildarmyndamaðurinn sem segir vondar fréttir

Fáir blaðamenn á 20. öld hafa verið jafn umdeildir og Ástralinn John Pilger. Gagnrýni hans á utanríkisstefnu Vesturlanda, sem hann segir vera heimsvaldastefnu, ræður líklega þar mestu um.

 

Pilger hefur gert fjölda heimildarmynda þar sem hann setur viðfangsefni sitt í stærra samhengi og dregur svo af því víðtækar ályktanir. Má segja að Pilger sé meistari í því að vekja sterkar tilfinningar hjá… [Lesa meira]

Maó og Kissinger, 1975

Glatt á hjalla hjá Maó formanni og Henry Kissinger, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, árið 1975. Gerald Ford Bandaríkjaforseti og dóttir hans Susan fylgjast kát… [Lesa meira]