Tíunda sinfónía Sjostakóvitsj var frumflutt í Pétursborg (þá Leníngrad) í desember 1953, skömmu eftir andlát Stalíns. Í verkinu dregur tónskáldið upp mynd af lífinu í Ráðstjórnarríkjunum á tímum harðstjórans fræga. Í skjölum Sjostakóvitsj kemur fram að annar hluti sinfóníunnar sé eins konar „hljóðræn andlitsmynd af Stalín“, enda er verkið hlaðið tilheyrandi drunga og spennu. Hér heyrum við… [Lesa meira]
Agneta Westlund var fórnarlamb elgs
Konungur sænska skógarins, elgurinn, er tilkomumikið dýr. Hann er bæði háfættur og tignarlegur en einnig stórhættulegur. Argur elgur getur léttilega orðið fullvaxta manneskju að bana.
Í september árið 2008 fannst Agneta Westlund látin við vatnið Frisksjön í Loftahammar í Svíþjóð. Bar lík hennar þess merki að hafa verið beitt miklu afli og beindust sjónir lögreglunnar nánast samstundis að eiginmanni Agnetu, Ingemar… [Lesa meira]
Breska ljóðskáldið Philip Larkin: „Mamma þín og pabbi fokka þér upp“
„Þau fokka þér upp, mamma þín og pabbi“. Svona hljómar fyrsta línan í frægasta ljóði breska skáldsins Philip Larkin. Ljóðið heitir This Be The Verse. Inntakið er ægilega svartsýnt en eins og Þorsteinn Gylfason heimspekingur skrifaði „er dálítið til í því“. Allavega nógu mikið til þess að breskur dómari vitnaði í það í harðvítugu forræðismáli.
Philip Larkin (1922-1985) starfaði lengst af… [Lesa meira]
Magnaðar myndir úr heimshornaflakki Nóbelsverðlaunahafans
Martin Karplus, prófessor við háskólana í Harvard og Strassborg, er handhafi Nóbelsverðlaunanna í efnafræði í ár, ásamt Michael Levitt og Arieh Warshel. Saman þróuðu þeir hugbúnað á áttunda áratuginum sem gerir efnafræðingum kleift að skilja flókin efnahvörf, eða „kortleggja leyndardóma efnafræðinnar“ eins og það er orðað í tilkynningu sænsku Nóbelsnefndarinnar.
En Karplus er ekki einungis afburða eðlisfræðingur heldur einnig hæfileikaríkur ljósmyndari.
Martin… [Lesa meira]
„Speglamaðurinn“: Heimildarmynd um argentínska rithöfundinn Borges
Argentínski rithöfundurinn Jorge Luis Borges var þekktur fyrir ferðalög sín um ímyndaða heima. Hann ferðaðist jafnt um tíma og rúm og kom meðal annars við á Íslandi í skáldskap sínum.
Hann var fæddur í Buenos Aires árið 1899 og lést árið 1986.
Hér fyrir ofan er heimildarmynd um líf hans, sem gerð var árið 1999.
GUÐBERGUR UM… [Lesa meira]
Lemúrinn tveggja ára!
Lemúrinn var stofnaður 8. október 2011 og er því tveggja ára í dag! Ritstjórn þakkar frábærar móttökur!
Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim tíma. Lesendahópur Lemúrsins hefur vaxið jafnt og þétt. Við minnum ykkur á að fylgjast með okkur á Facebook, en hópurinn þar telur nú hátt í 5000 manns.
Við minnum ykkur líka á að Lemúrinn er… [Lesa meira]

