4. þáttur: Hedy Lamarr, síðasti keisari Íran og Jón Ólafsson Alaskafari

Fjórði þáttur Lemúrsins á Rás 1 var fluttur 22. október. Fjallað var um Hollywood-leikkonuna Hedy Lamarr sem stundaði merk vísindastörf í hjáverkum og síðasta keisara Íran og magnaða veislu sem hann efndi til þess að halda upp á 2500 ára afmæli Persaveldis. Að síðustu var rætt um Jón Ólafsson ritstjóra og ævintýramann sem ferðaðist til Alaska árið 1874 og vildi stofna þar… [Lesa meira]

Kaffi breytti gangi sögunnar

Margir myndu eflaust telja að það hafi verið áherslan á vísindi og raunhyggju á tímum upplýsingaraldar sem hafi verið ástæðan fyrir stórum skrefum vestræns samfélags í átt til almennrar velmegunar. Þau áhrif má auðvitað ekki vanmeta. Gallinn var hins vegar sá að allt til loka 17. aldar var enginn í ástandi til að tileinka sér vísindaleg vinnubrögð… því það hugsaði… [Lesa meira]

Farmur könnunarfaranna Voyager: Magnaðar myndir frá jörðinni fyrir geimverur

Voyager-áætlun bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA er eitt metnaðarfyllsta verkefni vísindamanna í sögunni. Tvö könnunarför voru send út í óravíddir geimsins. Þau svifu framhjá reikistjörnum og tóku ómetanlegar myndir af þeim og héldu síðan för sinni lengra út í geiminn. Geimförunum var skotið í loftið frá Canaveral-höfða í Flórída árið 1977.

 

Förin eru nú þeir hlutir sem ferðast hafa lengst frá jörðinni. Voyager… [Lesa meira]

Trúboðasleikjari: Tónlistarmyndbandið sem þjóðin fékk aldrei að sjá

Árið 1988 kom stuttskífan Hold út, fyrsta plata gleðisveitarinnar Ham, einungis fjórum mánuðum eftir stofnun sveitarinnar. Hún vakti strax mikla athygli og furðu, enda var hún mjög forvitnileg. Á plötuumslaginu var óhugnanleg mynd af alblóðugum nöktum manni á bílskúrsgólfi með bundið fyrir augun.

 

Á plötunni voru alls fimm lög; Hold, Svín, Auður Sif, Transylvanía og síðast en alls ekki síst Trúboðasleikjari.

 

… [Lesa meira]

David Lynch kynnir sögu súrrealískra bíómynda á BBC

Vídjó

David Lynch sá árið 1987 um þátt um sögu súrrealískra kvikmynda á BBC.

 

BBC Arena er einn helsti menningarþáttur Bretlands en þýski leikstjórinn Werner Herzog hefur kallað þessa vönduðu þætti „vin í geðveikshafi sjónvarpsins“.

 

Lynch hafði á þessum tíma gert kvikmyndirnar Blue Velvet, Eraserhead, Dune og Elephant Man og hafði með þeim þegar náð frægð fyrir… [Lesa meira]

3. þáttur: Dularfullar eyjar, Nixon í Kína og höfuðlagsfræði í íslenskri kennslubók

Þriðji þáttur Lemúrsins á Rás 1 var fluttur 15. október. Lemúrinn fjallar um afskekktar smáeyjar í heimshöfunum, dularfullt hvarf þýskrar barónessu á Galapagos, um sögulega heimsókn Richards Nixon Bandaríkjaforseta til Kína þar sem bæði borðtennis og pöndur koma við sögu, og um vafasama íslenska náttúrufræðibók frá nítjándu öld.

 

Hlustið hér á þáttinn (mp3-​​skrá hjá hlað­varpi RÚV).

 

Lemúrinn er á hlaðvarpinu.

 

Umsjónarmenn eru Helgi… [Lesa meira]