Tetris hefur verið sagður einn besti tölvuleikur allra tíma. Útgáfur af honum eru til fyrir nær öll stýrikerfi, leikjatölvur og snjallsíma, og flestir hafa á einhverju stigi ævinnar reynt fyrir sér í þessum merka leik. Auk þess að vera gríðarlega ávanabindandi á leikurinn sér stórmerkilega sögu.
Tetris var fundinn upp árið 1984 af rússneska tölvunarfræðingnum Alexei Pajitnoff, sem þróaði fyrstu útgáfuna á meðan hann starfaði við rannsóknir í Dorodnítsin tölvuverinu í Moskvu. Heitið dró hann af tetra, gríska orðinu yfir töluna fjórir, enda eru allar blokkirnar í leiknum myndaðar úr fjórum kössum.
Leikurinn var ekki lengi að fanga athygli fyrirtækjanna Nintendo og Atari, sem vildu ólm komast yfir réttinn til þess að þróa útgáfur fyrir leikjatölvur sínar. Á tímum Sovétríkjanna gekk höfundaréttur á verkum sovéskra borgara hins vegar sjálfkrafa til ríkisins. Fyrir vikið var sendur grjótharður sovéskur kerfiskarl til þess að ná samningum við þessi kapítalísku stórfyrirtæki.
Heimildarmyndin Tetris: From Russia With Love frá árinu 2004 segir þessa stórmerkilegu sögu og greinir frá örlögum skapara leiksins, Pajitnoff, sem sá aldrei krónu af þeim auðæfum sem hann átti skilið.