Hér sjáum við Búðir á Snæfellsnesi um aldamótin 1900. Myndirnar tók breski ljósmyndarinn Frederick W.W. Howell, sem ferðaðist til Íslands og Færeyja (Cornell University Library). Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
Howell var mikið á Íslandi á síðasta áratug nítjándu aldar og starfaði meðal annars sem leiðsögumaður fyrir erlenda ferðalanga. Hann gekk á Hvannadalshnúk árið 1891, hugsanlega fyrstur manna, og fór yfir Langjökul þveran 1899. En Howell drukknaði í Héraðsvötnum sumarið 1901 og var jarðaður að Miklabæ. Lemúrinn mælir með bókinni Ísland Howells — Howell’s Iceland (1890–1901), eftir listsagnfræðinginn Frank Ponzi, en hún kom út árið 2004.
„Howell tók þessar myndir á þeim tíma sem nútímamenning var vart farin að ryðja sér til rúms á Íslandi, og því hafa þær mikið heimildagildi,“ sagði Ponzi í viðtali við Morgunblaðið árið 2004.