Eins og komið hefur fram á Lemúrnum var uppfinningamaðurinn Thomas Edison mikill brautryðjandi í sögu kvikmyndarinnar. Hann framleiddi ýmsar kvikmyndir í stúdíói sínu í New York og árið 1894 leit þessi furðulega stuttmynd dagsins ljós: Kettir í miðjum hnefaleikabardaga.
Greinar um Edison á Lemúrnum:
Fred Ott hnerrar og kjólklæddar konur í hnefaleikum: Á síðasta áratug nítjándu aldar fann uppfinningamaðurinn knái Thomas Edison upp frumstæða kvikmyndavél sem hann kallaði Kinetograph, og tilheyrandi sýningartæki, Kinetoscope. Edison kvikmyndaði mann að hnerra – og sú mynd var eiginlega upphaf Hollywood.
Hljóðvélin sem „geymir bergmál“ nítjándu aldarinnar: Edison smíðaði árið 1877 fyrsta hljóðritann, sem hann nefndi „phonograph“. Við getum því heyrt raddir sögufrægra manna á borð við Bismarck og Tsjaíkovskíj.
Frankenstein: Bíó Lemúr sýnir eina fyrstu hryllingsmynd sögunnar, sem framleidd var í kvikmyndaveri Edison.