Video

 

Á síð­asta áratug nítj­ándu aldar fann upp­finn­inga­mað­ur­inn knái Thomas Edison upp frum­stæða kvik­mynda­vél sem hann kall­aði Kinetograph, og til­heyr­andi sýn­ing­ar­tæki, Kinetoscope. Edison virð­ist ekki hafa hugsað kvik­mynda­áhorf sem þá félags­legu iðju sem það er í dag: áhorfið fór þannig fram að maður beygði sig yfir sýn­ing­ar­tækið og horfði í gegnum lítið op á filmuna rúlla.

 

Herramaður nokkur horfir á Kinetoscope-​​mynd í ró og næði.

 

Edison tók sjálfur upp fjöld­ann allan af stutt­myndum og mynd­skeiðum til þess að prófa tækni sína og vekja athygli almenn­ings. Hér að ofan má sjá eina af af fræg­ustu kínetóskóp-​​myndunum — Hnerri Fred Otts frá 1894. Myndin er fimm sek­úndur að lengd og sýnir aðstoð­ar­mann Edisons taka hressi­lega í nefið og hnerra svo. Þetta er jafn­framt fyrsta kvik­mynd sem sett var í höf­und­ar­rétt í Bandaríkjunum — hnerr­inn var upp­hafið að Hollywood, má ef til vill segja.

 

Hnerri Fred Otts sýnir kínetóskóp-​​tæknina á algjöru frum­stigi. Næsta áratug­inn hélt Edison áfram að þróa upp­finn­ingu sína, þó fljót­lega yrði ljóst að hún myndi lúta í lægra haldi fyrir öðrum, eins og hinum frönsku Lumière-​​bræðrum sem þegar voru farnir að ferð­ast um heim­inn með kvik­mynda­vél sína. Þessa stutta mynd­skeið fram­leiddi Edison árið 1901. Það sýnir tvær systur, Bessie og Minnie Gordon, keppa í hne­fa­leikum klæddar í fín­ustu blúndukjóla. Systur þessar ku hafa verið vin­sælir skemmtikraftar í burlesque-​​leikhúsum á skemmt­anap­ara­dís­inni Coney Island í New York.

 

Video