Heimsins lélegustu bíómyndir: Niðurgrafnir nasistar, Titanic 2, Terminators og Pirates of the Treasure Island

Ein lélegasta bíómynd sögunnar heitir 2012: Ice Age og fjallar um ísöld sem hefst eftir mikið eldgos á Íslandi. Hún var gerð í þeirri von að saklausir viðskiptavinir á vídjóleigum tækju hana óvart með sér heim í staðinn fyrir stórslysasmellina 2012 eða The Day After Tomorrow. Lesið um hana hér.

 

2012: Ice Age kemur úr smiðju kvik­mynda­vers­ins The Asylum… [Lesa meira]

Ljósmyndir lögreglunnar frá NATO-mótmælunum í mars 1949

Wikipedia á íslensku hefur verið til í 10 ár. Í tilefni þess voru á dögunum birtar fjölmargar ljósmyndir frá einum frægasta mótmælafundi Íslandssögunnar. Árið 1949 sam­þykkti rík­is­stjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar aðild Íslands að Norður-​​Atlantshafsbandalaginu. Ákvörð­unin var mjög umdeild á sínum tíma, og fjöldi manns safn­að­ist saman við Austurvöll þann 30. mars í mót­mæla­skyni. Eins og frægt er, kom til harð­vítugra átaka milli… [Lesa meira]

Eiginkonur Bítlanna auglýsa Apple-klæðnað

Á þessari frábæru mynd eftir Ronald Traeger má sjá þær Cynthiu Lennon, Maureen Starkey og systurnar Pattie og Jenny Boyd. Á myndinni klæðast þær fatnaði úr Apple-versluninni sem var staðsett við Baker-stræti númer 94 í miðborg Lundúna.

 

Bítlarnir ætluðu sér að sigra heiminn á öllum sviðum, þar á meðal í tískuheiminum. Klæðnaðurinn ber indverskt yfirbragð, en á þessum tíma voru Bítlarnir… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: „Varir sem snerta áfengi…“

Ljósmynd þessi er frá öðrum áratug 20. aldar. Konurnar á myndinni gerðu hana á vegum Anti-Saloon League, bandarískra samtaka sem börðust fyrir því að áfengi yrði bannað þar í landi. Þessar siðprúðu dömur standa undir skilti með slagorðinu „Varir sem snerta áfengi munu ekki snerta okkar varir“.

 

Samtökin fengu sínu framgengt árið 1920 með átjándu viðbótinni við stjórnarskrá Bandaríkjanna, sem kvað á… [Lesa meira]

10. þáttur: Forngrískar manngerðir, ryklok Jóhanns Sigurjónssonar og bófaharmónikkutónlist

Lemúrinn fjallar um gríska heimspekinginn Þeófrastos og manngerðir hans, skrítnar uppfinningar leikskáldsisn Jóhanns Sigurjónssonar og bófaharmonikkutónlist frá… [Lesa meira]

Þáttur Lemúrsins á Rás 1 fær fimm stjörnur

Lemúrinn er á Rás 1 alla þriðjudaga klukkan 16:05. Hlustið á okkur! Hér er fimm stjörnu dómur sem birtist í DV. „Í þættinum sameinast tvennt af því allra besta í íslensku menningarlífi, Lemúrinn, annars vegar, og Rás 1, hins vegar.“

 

Hér er síða Lemúrsins á vefsíðu RÚV.

 

Fylgist með á… [Lesa meira]