Hvernig Reykvíkingar árið 1966 hlökkuðu til bílaborgar framtíðarinnar

Árið 1966 birti Lesbók Morgunblaðsins grein þar sem lesendum var boðið í tímaferðalag til Reykjavíkur árið 1983.

Aðalskipulag höfuðborgarinnar 1962-1983 gilti til þessa árs og blaðið ímyndaði sér borgina þegar það hefði verið til lykta leitt.

Þetta var ferðalag til bjartrar framtíðar, til nútímalegrar höfuðborgar, þar sem „fullkomið hraðbrautakerfi hefur verið skipulagt fyrir bílaumferðina“. Miðborginni hefur verið gjörbreytt, þar… [Lesa meira]

Aska og eyðilegging: Heimaey, júlí 1974

Heimaey í júlí 1974. Þá var ár liðið frá lokum eldgossins í Vestmannaeyjum og hreinsunarstarf var enn í fullum gangi.Myndirnar tók Þjóðverjinn Christian Bickel en Íslandsmyndir hans frá sömu árum hafa áður birst á Lemúrnum.

Eldgosið hófst um miðja nótt 23. janúar 1973 og lauk 3. júlí það ár. Íbúar í Vestmannaeyjum voru þá um 5200 og voru… [Lesa meira]

Jónatan, sem enn er á lífi, á mynd frá 1886

Risaskjaldbakan Jónatan, til vinstri, sést hér á ljósmynd frá 1886. Þá var hann 54 ára gamall og var tiltölulega nýfluttur til núverandi heimkynna sinna á eyjunni St. Helenu, sem er eldfjallaeyja undir breskum yfirráðum í miðju Suður-Atlantshafinu.

Jónatan er fæddur árið 1832 á Seychelles, eyjaklasa sem liggur á Indlandshafi, hinum megin við Afríku. Hann var gjöf til ríkisstjórans á… [Lesa meira]

Leynihljóðsnældurnar um Tsjernobyl: Legasov talar

Vídjó

Valeríj Legasov, efnafræðingur í Tsjernobyl-nefndinni, er sjónvarpsáhorfendum að góðu kunnur eftir þáttaröðina um kjarnorkuslysið, þar sem Jared Harris lék hann.

Undir lok ævinnar talaði vísindamaðurinn inn á segulband um upplifun sína á slysinu, en hann var lykilmaður í tæknilegu björgunarstarfi í Tsjernobyl. Hér fyrir ofan er hægt að hlusta á brot… [Lesa meira]

Marilyn Monroe les Ódysseif eftir James Joyce, 1955

Stórstjarnan Marilyn Monroe les Ódysseif eftir James Joyce á Long Island í Bandaríkjunum árið 1955. Mynd: Eve Arnold.

Bókavefurinn Druslubækur og doðrantar: „Samkvæmt öruggum heimildum er [myndin] tekin á leikvelli á Long Island um miðbik sjötta áratugar síðustu aldar af Eve… [Lesa meira]

Lokum bannáranna fagnað

Konur fagna lokum bannáranna í Bandaríkjunum,… [Lesa meira]