Ótrúlegar vistarverur írskra munka á eyjunni Skellig Michael

Á eyjunni Skellig Michael, suðvestur af ströndum Írlands, má finna leifar munkalausturs. Það er kannski ekki merkilegt í sjálfu sér, en þegar vistarverur munkanna eru skoðaðar nánar reka margir upp stór augu. Híbýli þeirra líkjast helst hlöðnum hraukum sem einungis er hægt að nálgast með því að feta hellulagaða stíga upp snarbrattar hlíðar eyjarinnar. Ekki er vitað hvenær klaustrið var stofnað… [Lesa meira]

Frábærir heimildarþættir um upplausn Júgóslavíu

Ríkið Júgóslavía — land Suður-Slava — varð til í stakkaskiptunum miklu eftir fyrri heimsstyrjöld, við sameiningu nokkura slavneskra ríkja á Balkanskaga. Eftir síðari heimsstyrjöld komust kommúnistar til valda undir stjórn Josip Broz Tito. Tito gerði Júgóslavíu að sambandsríki og barði niður þjóðernis- og aðskilnaðaröfl af hörku.

 

Miklar umbreytingar fylgdu dauða Tito og þegar járntjaldið féll árið 1989 fór aftur að kynda undir gömlu þjóðernisöflunum.… [Lesa meira]

Heimildarmynd: Ríki sem „eru ekki til“

Árið 2005 gerði breski sjónvarpsmaðurinn Simon Reeve þáttaröð fyrir BBC sem heitir Places That Don’t Exist — Staðir sem eru ekki til.

 

Í þáttunum fer Reeve til ýmissa fjarlægra ríkja sem ekki eru viðurkennd alþjóðlega sem fullgild þjóðríki. Á ferðum sínum heimsækir hann meðal annars Suður-Ossetíu, Sómalíland, Transnistríu, Taívan og Nagorno-Karabakh — svæði sem fæstir þekkja mikið til. Öll eiga þau það sameiginlegt að vera á skringilegu… [Lesa meira]

Lenín fjögurra ára

Vladimir Ilyich Ulyanov, síðar Lenín, fjögurra vetra… [Lesa meira]

28. þáttur: Ófreskjur

Lemúrinn fjallar um ófreskjur og aðrar furðuskepnur – meðal annars ógurlegt leirmenni skapað með göldrum og sæskrímsli sem varð á vegi íslensks bónda árið 1854. Þá er fjallað um furðuleg skrímsli á sjónvarpsskjánum, til dæmis klósettskrímslið í… [Lesa meira]

„Norrænn þokki“: Íslenskar stúlkur sýna listir sínar, 1932

Vídjó

„Íslenskar stúlkur eru alveg jafn hjartahlýjar og glæsilegar og suðrænar meyjar, þrátt fyrir kuldalegt nafn eyjunnar þeirra,“ segir í þessari þöglu mynd frá 1932. Íslenskar stúlkur dansa og teygja sig.

 

„Jafnvægi og tími – fullkomið.“

 

Stúlkurnar virðast vera á íþróttavelli í Bretlandi. Vita lesendur meira um málið?

 

Myndskeiðið er geymt hjá breska filmusafn­inu British Pathé… [Lesa meira]