Blómey Stefánsdóttir (1914-1997) og Óskar Magnússon (1915-1993) með mynd þeirra af Jósef Stalín. Hjónin bjuggu í torfkofa á Hellisheiði frá 1973 til 1984 og ófu myndir af stjórnmálamönnum, þjóðskáldum og fleiri hetjum. Stalín var í sérstöku uppáhaldi. Um þessa alþýðulistamenn á sviði vefnaðar má til dæmis lesa í bók Ásdísar Höllu Bragadóttur, Tvísaga: móðir, dóttir, feður, en Blómey… [Lesa meira]
Draumkenndar rúmfræðimyndir Lorenz Stöer, 1567
Lorenz Stöer var teiknari sem bjó í Nürnberg á 16. öld. Hann skildi eftir sig merkilega kennslubók sem út kom um 1567. ‘Geometria et Perspectiva’ inniheldur 11 tréskurðarmyndir sem ætlaðar voru sem sýnidæmi fyrir listamenn sem stunduðu skreytingar á byggingum og húsgögnum. Teikningarnar eru undarlega nútímalegar og sýna draumkenndar senur þar sem rúmfræðileg form birtast innan um rústir fornra bygginga.
Lísa í Undralandi með myndskreytingum Tove Jansson
Árið 1959 myndskreytti Tove Jansson sænska útgáfu Lísu í Undralandi.
Hinn finnski höfundur Múmínálfanna var auðvitað fjölhæfur snillingur sem samdi ekki einungis hinar stórkostlegu bækur um Múmíndalinn, heldur myndskreytti fjölda annarra bóka. Eins og Lemúrinn hefur áður sagt frá myndskreytti hún sænsku útgáfu Hobbitans eftir J.R.R. Tolkien árið 1962.
Myndirnar sem við sjáum hér eru ekki af… [Lesa meira]
Felix Dzerzinskíj
Illmennið Felix Dzerzinskíj (1877–1926), stofnandi Cheka, fyrstu „ríkisöryggissveitar“ Bolsévika í Rússlandi eftir byltingu. Dzerzinskíj barði niður andóf gegn kommúnistastjórninni af mikilli hörku og leiddi aðgerðir við að þurrka út… [Lesa meira]
Leonard Bernstein og ósvaraða spurningin
Leonard Bernstein átti farsælan feril sem tónskáld og hljómsveitarstjóri á tuttugustu öldinni. Hans þekktasta tónverk er án efa tónlistin í West Side Story.
En Bernstein var einnig frábær í að miðla þekkingu sinni á tónlist á einstaklega aðgengilegan og smitandi hátt, hvort sem það var til byrjenda eða lengra kominna.
Á sjöunda áratug síðustu aldar hjálpaði hann… [Lesa meira]
Vin Mariani: „heilsuvínið“ sem var eftirlæti Páfagarðs
Á síðari hluta 19. aldar var neysla á ópíum og ópíumskyldum efnum nokkuð útbreidd meðal efri stétta í Vestur-Evrópu. Voru þau jafnan markaðssett sem verkjalyf, eða jafnvel til að róa tannverki barna þegar þau voru að fá fullorðinstennur. Um svipað leyti fór annað efni að njóta almennrar viðurkenningar, fyrst sem íblöndunarefni í heilsudrykki.
… [Lesa meira]