Sálumessa Detroit

Nýlega bárust okkur þær fréttir að neyðarlög hefðu verið sett í borginni Detroit í Bandaríkjunum til að bjarga henni frá gjaldþroti. Nýr fjármálastjóri borgarinnar, Kevyn Orr, hefur svo víðtækar heimildir í sínu embætti að menn gengu svo langt að segja að lýðræði hafi verið afnumið í borginni. Uppfært 19. júlí: Detroit er gjaldþrota.

 

Detroit er borg með merkilega… [Lesa meira]

Fjársjóðskista af sovéskum teiknimyndum með texta

Rússland á langa og merkilega teiknimyndagerðarhefð sem ekki hefur notið nægilegrar athygli á Vesturlöndum. Sovétríkin framleiddu ótal merkilegar teiknimyndir bæði fyrir börn og fullorðna sem sjást því miður sjaldan í dag.

 

En til allrar hamingju hefur internetið verið fundið upp, og Youtube-notandinn Eus347 hefur dælt þangað inn fjölda af sovéskum og rússneskum teiknimyndum með enskum texta. Þar kennir ýmissa grasa, frá… [Lesa meira]

Sviðsetti eigin jarðarför og notaði aldrei greinarmerki

Timothy Dexter var forríkur sérvitringur er bjó í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum á seinni hluta átjándu aldar. Hann gaf út sjálfsævisögu en hugaði hvorki að stafsetningu né greinarmerkjum svo hún varð nær ólæsilegur orðaflaumur. Þegar lesendur kvörtuðu yfir þessu bætti Dexter við blaðsíðu aftast í bókina með 13 línum af engu nema punktum og kommum.

 

Ævi hans var nokkurn veginn svona:

 

Dexter var… [Lesa meira]

Hakakross í merki íslensks íþróttafélags

Íþróttafélagið Þór var stofnað í Vestmannaeyjum 9. september 1913 af þrettán stofnfélögum.

 

Árið 1945 var ákveðið að öll félög úr Vestmannaeyjum myndu keppa undir merkjum ÍBV utan héraðs. Frá og með 1996 voru félögin Þór og Týr sameinuð undir merkjum ÍBV.

 

Ljósmyndin sem við sjáum hér að ofan sýnir stolta Þórara stilla sér upp fyrir framan merki félagsins, einhvern tímann á árunum… [Lesa meira]

Stalín hress á ljósmynd sem tekin var af lífverði hans

Hér sjáum við skoplega mynd af Jósef Stalín, sovéska kommúnistaleiðtoganum ógurlega, en fórnarlömb hans teljast í milljónum. Myndin var tekin árið 1952 af lífverði hans, trúnaðarmanni og tengdasyni, Nikolai Vlasik.

 

Skömmu eftir töku þessarar myndar var Vlasik sendur í fangabúðir Gúlagsins, líkt og svo margir sem urðu harðstjóranum nánir. Honum var þó sleppt úr búðunum skömmu eftir andlát Stalíns 1953. Persónulegu… [Lesa meira]

Bjargað af Tinu Turner og varð stjarna í Bretlandi

P.P. Arnold er bandarísk söngkona sem hefur átt langan og farsælan feril. Sjálf var hún viss um að lífi sínu væri lokið, þegar hún var ekki einu sinni orðin 19 ára gömul. Röð tilviljana leiddi til þess að hún fékk hjálparhönd úr óvæntri átt, frá sjálfri Tinu Turner.

 

Arnold, fædd Patricia Ann Cole árið 1946, ólst upp í fátækrahverfum Los Angeles… [Lesa meira]