Sumarið 1935 fór skipið SS Reliance í ferð um norðurslóðir með ferðamenn. Hamburg-American Line gerði skipið út. Í þessu broti sjáum við skipið leggja af stað frá höfninni í New York, og koma við á Íslandi og Jan Mayen og loks fer það alla leið til Svalbarða. Örfáum árum síðar brann… [Lesa meira]
Íslenskur nasisti og reðurgjafi: „Elskan mín, ég svara ekki svona helvítis vitleysu!“
Hér sjáum við Erp Eyvindarson í hlutverki Johnny National ræða við Pál Arason (1915-2011), nasista og ferðafrömuð, sem síðar komst í heimsfréttir fyrir að ánafna Hinu íslenzka reðasafni lim sinn. Viðtalið birtist í þættinum Íslensk kjötsúpa sem sýndur var á Skjá einum á sínum… [Lesa meira]
Rætt við Jóhann Svarfdæling árið 1972
Jóhann K. Pétursson Svarfdælingur (1913–1984) var sem kunnugt er stærsti Íslendingur sem sögur fara af, 2,34 m á hæð. Hann starfaði áratugum saman við sirkussýningar og kvikmyndaleik, fyrst í Kaupmannahöfn — þar sem hann festist á stríðsárunum — og síðar í Bandaríkjunum þar sem hann bjó meirihluta ævinnar.
Hér má heyra viðtal sem tekið… [Lesa meira]
Sumardjammið árið 1934
Það er alltaf gaman á sumrin og árið 1934 var ungt fólk alveg jafn duglegt að sletta úr klaufunum og nú. Hér heyrum við vinsælt dægurlag frá þeim tíma: My Baby Just Cares For Me með Ted Weems And His Orchestra.
Ljósmyndir eftir Hollendinginn Willem van de Poll sem kom til Íslands sumarið 1934.… [Lesa meira]
Flóðsvín busla í heitum potti
Flóðsvín eða capybara eru heimsins stærstu nagdýr. Þessir frændur hamstra og naggrísa verða allt að 130 sentimetrar á lengd og 60 kíló, eða eins og vænsti hundur. Hér má sjá mynd af flóðsvíni og heimilisketti til stærðarsamanburðar.
Heimili flóðsvína er í Suður-Ameríku en þau má auðvitað finna í dýragörðum víða um heim. Í dýragarði í Nagasaki… [Lesa meira]
Pallborðsumræður árið 1971: Hvernig verður Ísland árið 2000?
Árið 1971 settist hópur Íslendinga niður og ræddi um Ísland árið 2000. Þetta spjall birtist í blaðinu Samvinnu. Þetta er bráðskemmtileg og fróðleg sýn á framtíðina frá sjónarholi Íslendinga fyrir rúmlega fjörtíu árum síðan.
Einn þáttakenda var Steingrímur Hermannsson sem síðar varð forsætisráðherra. Aðrir í hópnum voru Andri Ísaksson, Ágúst H. Bjarnason, Baldur Óskarsson, Bjarni Bragi Jónsson, Björn Stefánsson, Geir Vilhjálmsson,… [Lesa meira]




