Eisenhower og Bjarni Benediktsson, 1951

Dwight D. Eisenhower hershöfðingi, yfirmaður Evrópustjórnar Norður-Atlantshafsbandalagsins, heimsótti Ísland stuttlega árið 1951. Hér sést hann á flugvellinum í Reykjavík 25. janúar ásamt Bjarna Benediktssyni, þáverandi utanríkisráðherra.

 

Eisenhower varð síðar forseti Bandaríkjanna og kom í annað sinn til landsins árið 1955. Það var fyrsta skiptið sem Bandaríkjaforseti heimsótti Ísland í embætti.

 

Heimild: Borgarskjalasafn… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: Pýramídi auðvaldskerfisins

Þessi fræga áróðursmynd sósíalista ber heitið Pýramídi auðvaldskerfisins. Hún kom fyrst út árið 1911 í borginni Cleveland í Bandaríkjunum. Skráðir höfundar eru Nedeljkovich, Brashick og Kuharich.

 

Myndin sýnir valdkerfi kapítalismans frá sjónarhorni sósíalista. Fámennar elítur lifa í vellystingum á meðan blekkt og kúguð verkamannastétt þrælar undir oki… [Lesa meira]

„Milljónamæringurinn“: Sovésk áróðurs-teiknimynd um hund sem verður stórkapítalisti

Vídjó

Áróðursteiknimyndin Milljónamæringurinn var gerð árið 1963 af Soyuzmultfilm kvikmyndaverinu í Moskvu.  Hún segir söguna af dyggum hundi í Bandaríkjunum sem erfir ríkidæmi húsbónda síns og verður fyrir vikið að úrkynjuðum, dansandi, drekkandi, vindlareykjandi stórkapítalista. Myndin er með enskum texta.

 

Þarna voru á ferðinni teiknimyndasmiðirnir V. Bordsilovskíj og Y. Prýtkoff, sem fengust við að gera teiknimyndir fyrir sovésk… [Lesa meira]

Gamli franski spítalinn á Fáskrúðsfirði

Þessa mögnuðu ljósmynd af franska spítalanum á Fáskrúðsfirði tók Christian Bickel sumarið 2010. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði var reistur árið 1903 og tekinn í notkun árið 1904. Hann var einn þriggja spítala sem byggðir voru á Íslandi af franska ríkinu til að þjóna fjölda franskra fiskimanna sem stunduðu veiðar við landið. Umsvif Frakka á Íslandi voru mikil á þeirra tíma… [Lesa meira]

Marinière: Bretónsku sjóliðapeysurnar sem urðu að tískutákni

Það kannast eflaust allir við marinière-peysurnar, röndóttu sjóliðapeysurnar sem eru fyrir löngu orðnar að tískutákni. Peysurnar eru jafnan kenndar við bæinn Saint James sem er staðsettur milli Bretagne og Normandí í Frakklandi, og eru því stundum kallaðar bretónapeysur.

 

Franskur sjóliði árið 1910.… [Lesa meira]

Magnaðar myndir af NATO-mótmælunum við Austurvöll 1949

Árið 1949 samþykkti ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar aðild Íslands að Norður-Atlantshafsbandalaginu. Ákvörðunin var mjög umdeild á sínum tíma, og fjöldi manns safnaðist saman við Austurvöll þann 30. mars í mótmælaskyni. Eins og frægt er, kom til harðvítugra átaka milli andstæðinga samningsins, lögreglu og stuðningsmanna… [Lesa meira]