Trümmerfrauen: konurnar sem endurbyggðu Þýskaland

Eftir að Þjóðverjar höfðu viðurkennt ósigur í seinni heimstyrjöldinni í maí árið 1945 voru þýskar borgir í rjúkandi rúst. Á árunum 1943 til 1945 höfðu flugherir Bretlands og Bandaríkjanna sprengt markvisst flest byggð ból og notað til þess um eitt og hálft milljón tonn af sprengiefnum. Fyrir stríð voru 16 milljón heimili í Þýskalandi en eftir stríð stóð aðeins um… [Lesa meira]

„Eldur og ís“: Fræðslumynd um Vetrarstríð Finnlands og Sovétríkjanna

Vídjó

Heimildarmyndin Fire and Ice – The Winter War of Finland and Russia (2006) greinir frá Vetrarstríðinu svokallaða, sem hófst 30. nóvember 1939 þegar Sovétríkin réðust inn í Finnland. Stríðið stóð í rúma þrjá mánuði og varð 150 þúsund manns að bana. Orsakir átakanna má rekja beint til Stalíns, sem vildi ná undir sovésk yfirráð þau svæði sem… [Lesa meira]

Leiðindaskarfar frá RÚV hlógu ekki að Fawlty Towers

Vídjó

Af tólf þáttum klassísku bresku gamanþáttaraðarinnar Fawlty Towers hefur öðrum þætti, sem ber heitið The Builders eða Iðnaðarmennirnir, verið lýst sem þeim versta. Eða með orðum aðalleikarans John Cleese, „minnst góða“ þætti seríunnar.

 

Það vakti þó furðu Cleese þegar þátturinn var tekinn upp árið 1975 hvað áhorfendur í upptökustúdíóinu virtust hlæja lítið. Þátturinn, sem fjallar… [Lesa meira]

Bertrand Russell flúði undan ágengum Íslendingum í París

Enn og aftur er heimspekingurinn og rökfræðingurinn Bertrand Russell umfjöllunarefni Lemúrsins. Russell var stórtækur yfir ævina: hann skrifaði yfir 80 bækur um heimspeki og stjórnmál, reykti pípu, lék í Bollywood mynd, og var auk þess virkur á eldri árum í alþjóðlegu baráttunni gegn kjarnorkuvopnavæðingu Kalda… [Lesa meira]

Myndir 14 ára stúlku af konungsheimsókn og Alþingishátíðinni 1930

Árið 1930 var blásið til stórhátíðar á Þingvöllum dagana 26.-28. júní. Tilefni hátíðarhaldanna var að þúsund ár voru þá liðin frá stofnun allsherjarþings á Íslandi. Kristján 10. konungur Danmerkur (og Íslands) kom til landsins af þessu tilefni og setti hátíðina. Hátíðin var vel sótt, en talið er að um 30-40.000 manns hafi verið á Þingvöllum í tengslum við hana.

 

Valgerður Tryggvadóttir,… [Lesa meira]

Þegar steinfaróarnir við Abu Simbel voru færðir

Risastóru faróastytturnar sem standa vörð við Abu Simbel-hofin tvö í sunnanverðu Egyptalandi eru með tilkomumestu fornminjum heims. Þegar Egyptar byggðu hina gríðarmiklu Aswan-stíflu á Níl fór mikið landsvæði í Suður-Egyptalandi undir vatn. Ættjörð heillar þjóðar sökk í uppstöðulónið og ómetanlegar fornminjar með.

 

Steinfaróarnir við Abu Simbel hefðu gert það líka, hefði UNESCO ekki gripið inn í. Alþjóðlegt lið verkfræðinga og… [Lesa meira]