Áróðursmálaráðuneytið: Bretar öruggir undir augum eftirlitsríkisins

Lemúrinn hélt að klaufaleg áróðurstækni fjórða og fimmta áratugsins væri löngu búin að deyja drottni sínum, en svo virðist ekki vera.

 

Áróðursplakat þetta birtist víðsvegar í strætóskýlum Lundúna árið 2002, skömmu eftir innleiðingu eftirlitsmyndavéla í almenningssamgöngukerfi borgarinnar. Ótrúlegt en satt þá var plakatið hvorki ádeila né grín. Það var birt í fúlustu alvöru á vegum embættis borgarstjóra Lundúna, sem þá var… [Lesa meira]

Pólitískur Paul var bannaður á BBC eftir blóðuga sunnudaginn

Það hefur frekar verið viðloðandi arfleifð ofbeldisfulla friðarsinnans Johns Lennons að vera talinn pólitískur. Hann var jú undir eftirliti hjá bandarísku leyniþjónustunni CIA eins og frægt er orðið. Hann barðist og söng fyrir friði, fyrir réttindum verkamannastéttarinnar, fyrir kvenréttindum og hverju sem honum datt í hug. Gamli ólátabelgurinn John.

 

Paul McCartney virtist í öllu falli mun prúðari og stilltari, var lítið… [Lesa meira]

Fóturinn sagaður af frönskum hermanni í fyrri heimsstyrjöld

Autochrome-litljósmynd af sjúkraliðum að aflima Zouave-hermann úr Norður-Afríkudeild franska hersins, í Tulette í Suðaustur-Frakklandi, 1915. Ljósmyndarinn er ókunnur.

 

Lemúrinn hefur áður birt litljósmyndir af frönskum hermönnum í fyrri heimsstyrjöld, bæði við Marne og … [Lesa meira]

Krossfiskurinn Hitler: Furðulegur vondi karl í japönskum þætti

Vídjó

Eins og fram hefur komið er jarðarkringlan okkar allundarlegur staður. Hér er nasistaforinginn Adolf Hitler í líki krossfisks (?) í japönsku þáttaröðinni Kamen Rider X frá 1974.

 

starfish_hitler_2341

Krossfiskurinn Dolli.

… [Lesa meira]

Hvað er internetið? Sprenghlægileg heimildarmynd frá tíunda áratugnum

Vídjó

Um 1995 var internetið glænýtt fyrirbæri. Margir klóruðu sér í höfðinu og áttuðu sig ekki alveg á þessari tæknibyltingu. Hér er sprenghlægilegt bandarískt kennslumyndband fyrir hressa krakka og foreldra um… [Lesa meira]

Angelo Badalamenti útskýrir hvernig tónlistin í Twin Peaks varð til

Vídjó

Bandaríska tónskáldið Angelo Badalamenti ætti að vera aðdáendum kvikmynda David Lynch góðu kunnur, en meðal þeirra mynda sem þeir félagar unnu saman að voru Blue Velvet, Wild at Heart, Lost Highway og Mullholland Drive.

Tónlist Badalamenti ætti einnig að vera áhorfendum sjónvarpsþáttanna Tvídrangar (e. Twin Peaks) kunnugleg.

Þar standa sérstaklega tvö… [Lesa meira]