Freiburg im Breisgau er 230 þúsund manna borg í Baden-Würthemberg í suðvesturhluta Þýskalands. Borgin er umkringd hlíðum Svartaskógar sem gerir hana einstaklega skjólríka og veðursæla.
Borgin er líklega þekktust fyrir háskólann sinn, Albert-Ludwigs-Universität, en við skólann hafa 19 Nóbelsverðlaunahafar numið eða starfað. Það var einmitt í Freiburg sem Hannah Arendt átti í ástarsambandi við nasistann Martin Heidegger, Konrad Adenauer lærði lögfræði… [Lesa meira]


