Könnunarjeppinn Spirit, sem Geimferðastofnun Bandaríkjanna sendi til plánetunnar Mars, tók þessa mynd hinn 19. maí 2005. Hún sýnir sólsetur um klukkan 18 við Gusev-gíginn.… [Lesa meira]
Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.
Köttur og fugl í búri, 1880
Köttur mænir á fugl í búri. Ca. 1880. (George Eastman House… [Lesa meira]
Noregur í upphafi tuttugustu aldarinnar
Lituð skuggamyndaplata af manni og barni í Noregi, myndin er tekin einhvern tímann á árunum 1901 til 1910. Samkvæmt orðalista Ljósmyndasafns Reykjavíkur er skuggamyndaplata „jákvæð glæra sem fest er á glerplötu og varpað á einhvern flöt með ljósi. Hugtakið á rætur að rekja til 19. aldarinnar þegar myndvarpar voru kallaðir töfralampar (magic lanterns).“ Myndin er frá Skjalasafni Sogns og… [Lesa meira]
Fangi númer 4100
George Davey var dæmdur í eins mánaðar þrælkunarvinnu í Wandsworth-fangelsinu í London árið 1872 fyrir að stela tveimur kanínum. Hann var tíu ára gamall. (The National Archives… [Lesa meira]
Mexíkóskir uppreisnarmenn gæða sér á tortillum
Mexíkóskir uppreisnarmenn úr liði Maderista sem börðust gegn einræðisstjórn Porfirios Díaz, gæða sér á tortillum árið 1911. (Library of… [Lesa meira]
Inúítí með kajak, 1854
Inúítí einhvers staðar á vesturströnd Grænlands árið 1854. Breski sjóliðsforinginn Edward Augustus Inglefield tók myndina í rannsóknarleiðangri. (National Maritime… [Lesa meira]
Eldhúsumræður Nixons og Krúsjoffs
Sumarið 1959 settu Bandaríkjamenn upp sýningu í miðborg Moskvu sem átti að vinna hug og hjörtu íbúa Sovétríkjanna. Á sýningunni gátu gestir meðal annars gengið um ganga „hins týpíska bandaríska heimilis“, sem var fullt af nýjustu tækni og þægindum. Skilaboð sýningarhaldara til hins þjakaða sovéska borgara voru að allir Bandaríkjamenn hefðu ráð á slíkum lúxus. Og allt undrum kapítalismans að… [Lesa meira]
Síða 31