Twitter-notandinn kawanabesatou hefur vakið gríðarlega athygli fyrir að leika sér með hamstra sína og láta þá fara með hlutverk barþjóna á börum og veitingastöðum. Sviðsmyndirnar eru glæsilega gerðar. Pínulítil útgáfa af hverju smáatriði sem finna má á börum er þarna til staðar.