Hér sjáum við prentmyndina „Svefn skynseminnar getur af sér skrímsli“ (spænska: El sueño de la razón produce monstruos) eftir spænska myndlistamanninn og prentarann Francisco Goya (1746–1828).
Myndin er úr Los Caprichos, röð af ádeilumyndum frá árinu 1797, og sýnir flögrandi skrímsli — leðurblökur og uglur, tákn fávískunnar — þyrpast um sofandi mann, en það er Goya sjálfur við vinnuborð sitt.
Verkið er ádeila á spænskt samfélag, sem höfundi þótti afturhaldssamt og spillt, og myndefnið er tvímælalaust undir áhrifum frá upplýsingarstefnunni, þeirri viðamiklu hreyfingu innan heimspeki og fræða sem hófst í lok 17. aldar og stóð út 18. öldina, þar sem höfuðáhersla var lögð á getu skynseminar til þess að útkljá heimsins vandamál og færa mannkynið inn í bjartari framtíð.
Hér að neðan má sjá skyssur Goya af endanlegu prentmyndinni: