Hollenska þjóðskjalasafnið geymir skemmtilegar ljósmyndir frá viðureignum Hollendinga og Íslendinga á knattspyrnuvellinum á áttunda áratugnum. Íslendingar þurftu að kljást við geysisterkt lið Hollendinga, bæði í undankeppni HM í Vestur-Þýskalandi 1974 og HM í Argentínu 1978.
Leiðtogi Hollendinga á þessum árum var Johan Cruyff, einn allra besti knattspyrnumaður sögunnar. Hollendingar komust í úrslitaleikinn á HM 1974 og HM 1978 en þurftu í bæði skiptin að játa sig sigraða fyrir heimamönnum hverju sinni. Íslendingar voru auðveld bráð fyrir þá á þessum árum. Snillingurinn Cruyff var þó ekki með á síðara mótinu, en hann lagði landsliðsskóna á hilluna árið 1977. Hann vildi ekki spila á HM í Argentínu vegna herforingjastjórnarinnar sem tekið hafði völdin árið 1976 og stundaði víðtæk mannréttindabrot.
Leikirnir:
22. ágúst 1973. Holland vs Ísland. Úrslit: 5-0
29. ágúst 1973. Holland vs Ísland. Úrslit: 8-1
8. september 1976. Ísland vs Holland. Úrslit: 0-1
31. ágúst 1977. Holland vs Ísland. Úrslit: 4-1
Myndir: 22. ágúst 1973. Holland vs Ísland. Úrslit: 5-0. Sjá leikskýrslu KSÍ hér.
Myndband frá leiknum:
Myndir: 29. ágúst 1973. Holland vs Ísland. Úrslit: 8-1. Sjá leikskýrslu KSÍ hér.
Myndir: 31. ágúst 1977. Holland vs Ísland. Úrslit 4-1. Sjá leikskýrslu KSÍ hér.