Jóhann K. Pétursson Svarfdælingur (1913–1984) var sem kunnugt er stærsti Íslendingur sem sögur fara af, 2,34 m á hæð. Hann starfaði áratugum saman við sirkussýningar og kvikmyndaleik, fyrst í Kaupmannahöfn — þar sem hann festist á stríðsárunum — og síðar í Bandaríkjunum þar sem hann bjó meirihluta ævinnar.
Hér má heyra viðtal sem tekið var við hann á Íslandi árið 1972 en þá hafði hann meðal annars getið sér orð fyrir að hafa leikið í vinsælli Hollywood-mynd nokkrum áratugum fyrr. Kvikmyndin hét Prehistoric Women, og fjallaði um hóp steinaldarkvenna sem hataðist við karlmenn.
Hér sjáum við þessa mynd. Jóhann leikur vondan kall sem vill hinu fólkinu illt. En Jóhann Svarfdælingur var langt frá því að vera vondur, og virðist hafa verið hið mesta ljúfmenni.
Tengdar greinar: Jóhann Svarfdælingur hjálpar dönskum listamönnum