Á vefsíðunni Eldrimyndir.fo er að finna stórskemmtilegt safn með gömlum færeyskum ljósmyndum úr ýmsum áttum sem notendur síðunnar hafa hlaðið inn. Þarna eru til dæmis margar ljósmyndir úr fjölskyldualbúmum og einkasöfnum sem sýna lífið í Færeyjum á tuttugustu öld á áhugaverðan hátt.

 

Hér sjáum við Færeyinga innan um fjöll og firnindi, skip og báta, slyddu og snjó. Þetta er kunnugleg veröld fyrir Íslendinga en líka framandi. Eiga lesendur Lemúrsins einhverjar minningar frá þeim stöðum sem hér birtast?

 

Efsta ljósmyndin sýnir brúna sem tengir saman tvær stærstu eyjar Færeyja, Straumey og Austurey. Stundum grínast Færeyingar og segja að þetta sé eina brúin yfir Atlantshafið. Myndin er tekin árið 1973, um það leyti er brúin var tekin í notkun.

 

Við hvetjum alla sem eiga gamlar ljósmyndir frá Færeyjum að senda þær á Eldrimyndir.fo eða á Facebook-síðu sömu vefsíðu. Merkingar sem fylgja myndunum eru teknar af færeysku síðunni.

 

 

 

 

Frá Skála árið 1968.

 

Friðrik IX Danakonungur og Pauli Joensen bæjarstjóri á Skála árið 1969.

 

„Stálskipsbyggjarar í Skála árið 1965.“

 

Mynd frá 1980, skip við Skála.

 

Frá skipasmiðju í Skála, 1940.

 

 

„Gamli skólinn á Skála árið 1973.“

 

„Mynd frá Skála árið 1969. Commer-rútan hjá Símin Højgaard, sem hann notaði til að keyra skólabörn í Runavík.“

 

Mynd tekin á Skála árið 1940 sýnir Rakul Rasmussen (f. Olsen).

 

Þórshöfn árið 1973.

 

Þórshöfn árið 1973.

 

 

 

Helena Viderø: „Mynd frá Viðareiði. Ég og Hannepaula.“

 

„Viðareiði. Abbi og Astrid.“

 

Jákup Petur Jacobsen.

 

Hvannasund á Viðoy.

 

Þórshöfn árið 1973.

 

Nesvík árið 1973.

 

John Simonsen við Hvannasund.

 

Petur Rasmussen og Jóhanna Rasmussen árið 1940.

 

Hvannasund árið 1975, Poul Johannes Johannesen.

 

Hvannasund.

 

„Mikladalur árið 1900.“

 

Viðareiði árið 1995.