Fáir Íslendingar voru jafn áberandi á fyrstu áratugunum í NATO-samstarfinu og herstöðvarmálinu og Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og síðar forsætisráðherra. Lemúrinn hefur áður birt myndir af Bjarna á baki úlfalda, en hér er hann nær náttúrulegu umhverfi sínu.
Hann var innsti koppur í búri í Norðuratlantshafsbandalaginu. Hér fyrir ofan sést hann skera afmælistertuna í veislu sem haldin var í tilefni 20 ára afmælis bandalagsins í apríl 1969. Með honum á myndinni er Manlio Brosio, aðalritari NATO og William Rogers, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.
Sléttum tuttugu árum áður hafði hann skrifaði undir stofnsáttmála NATO í Washington fyrir Íslands hönd.
Myndin hér að neðan er hins vegar tekin í Reykjavík árið 1968 þegar þar fór fram ráðherrafundur á vegum NATO. Frá vinstri: Willy Brandt, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands, Bjarni Benediktsson (með sólgleraugu), forsætisráðherra Íslands og loks Manlio Brosio, aðalritari NATO.
Árið 1951 kom Dwight D. Eisenhower til Íslands, en hann var þá yfirmaður herafla NATO. Hann varð forseti Bandaríkjanna tveimur árum síðar. Bjarni Benediktsson tók á móti honum: