Nasistar höfðu náð yfirráðum yfir Þýskalandi árið 1933. Þeir gerðu Ólympíuleikana í Berlín árið 1936 að einni mestu áróðurssýningu allra tíma. Handbolti var leikinn á mótinu og unnu Þjóðverjar gullverðlaunin. Keppt var utanhúss, á fótboltavöllum, eins og Lemúrinn rifjaði upp í vikunni.
Á myndinni hér fyrir ofan sjáum við verðlaunahafa í handboltamótinu. Í miðjunni standa Þjóðverjar og sitthvorum megin við þá Austurríkismenn sem unnu silfur og Svisslendingar sem unnu brons.
Þjóðverjar voru ógnarsterkir, unnu Ungverja 22-0 og Bandaríkjamenn 29-1 í fyrstu tveimur leikjunum.
Í úrslitaleiknum léku Þjóðverjar á móti Austurríkismönnum á Ólympíuleikvanginum í Berlín. Sumar heimildir herma að áhorfendur hafi verið um 100 þúsund talsins á þeim leik.
Fimm leikmenn gullliðsins og níu leikmenn silfurliðsins létust á vígvöllum seinni heimsstyrjaldarinnar, sem hófst aðeins þremur árum síðar.
Ekki var aftur keppt í handbolta á Ólympíuleikum fyrr en í München 1972.