Handbolti er til­tölu­lega ný íþrótt og var enn í mótun um miðja tutt­ug­ustu öld. Framan af var útihand­bolti mun vin­sælli en inni­hand­bolt­inn sem við þekkjum öll. Útihand­bolti var spil­aður á grasi, í raun á fót­bolta­völlum með fót­bolta­mörkum. Ellefu manns voru í hvoru liði.

 

Útihand­bolti var gríð­ar­lega vin­sæl íþrótt í Þýskalandi fyrir og eftir stríð. Á Ólymp­íu­leikum Hitlers í Berlín 1936 unnu Þjóð­verjar gull­verð­laun í útihand­bolta og urðu leik­menn­irnir að þjóð­hetjum í hinu brjál­aða and­rúms­lofti Þriðja ríkisins.

 

Árið 1955 mættu 50 þúsund áhorf­endur á úrslita­leik HM í hand­bolta utan­húss þar sem Vestur-​​Þjóðverjar sigr­uðu Svisslendinga 21–13.

 

En útihand­bolt­inn hvarf smám saman með vax­andi vin­sældum inni­hand­bolt­ans. Var það skandall? Væri ef til vill skemmti­legra að sjá Aron Pálmarsson og félaga hopp­andi á gras­inu á Laugardalsvelli?

 

Video

Eins og sjá má var gríð­ar­lega góð stemn­ing á útihandboltaleikjum.

 

Video

Þjóð­verjar voru sterkir úti.

 

Handboltakona í ham í Jena í Austur-​​Þýskalandi árið 1953. (Wikimedia Commons)