Viktoría Bretadrottning hélt samviskusamlega dagbók á næstum hverjum degi sinnar löngu ævi, frá því að hún var þrettán ára gömul prinsessa árið 1832 og allt þar til hún lést árið 1901, drottning yfir fjórðungi heimsins.
Hún skrifaði ekki aðeins atburði dagins í dagbækurnar heldur myndskreytti hún þær einnig ríkulega. Drottningin var ekki slæmur teiknari og bækurnar eru fullar af skemmtilegum teikningum af fjölskyldu hennar, erlendum gestum og kóngafólki, almennum borgurum sem urðu á vegi hennar, og auðvitað lemúrum.
Dagbækur Viktoríu hafa nýlega verið gerðar almenningi aðgengilegar í fyrsta sinn, í tilefni sextíu ára valdaafmælis langalangaömmubarns hennar á vefsíðunni Queenvictoriasjournals.org. Því miður getum við einungis skoðað síðuna tímabundið því lokað verður á gesti utan Bretlands í lok júlímánaðar.
En hérna er sýnishorn af teikningum Viktoríu.
Ítalska óperusöngkonan Giuditta Grisi sem Pamira í „L’Assedio di Corinto“ eftir Rossini. 4. júní 1836.
Albert prins í grímubúning. 12. maí 1842.
Skoskar fiskverkunarkonur. 3. september 1842.
Forreiðarsveinn að aftan, 6. september 1842.
Biskupinn í Bruges, 15. september 1842.
Belgískur hermaður, 15. september 1842.
Elstu börn drottningarinnar — Viktoría, hin konunglega prinsessa og Albert Játvarður prins af Wales — í búningum sem bændur í Gotha, 24. maí 1844.
Hundurinn Eos, 1. ágúst 1844.
Viktoría prinsessa (5 ára) og Viktoría drottning í búningum, 6. júní 1845.
Albert prins í búningi, 6. júní 1845.
Níu barnabörn hertogaynjunnar af Kent, 17. ágúst 1848.
Hertogaynjan af Kent, 24. maí 1849.
Lemúr, 23. júní 1849.
Afmælisgjafir Viktoríu á 32 ára afmælisdaginn, 24. maí 1851.
Börn Viktoríu setja Þrettándakvöld á svið, 6. janúar 1851.
Særðir hermenn á herspítala í Chatham, 3, mars 1855.
Said, bróðir tyrkneska pasjans, 10. nóvember 1856.
Viktor Emmanúel II konungur Sardiníu, 30. nóvember 1855.
Márískir sendiboðar, 22. júní 1860.
Konur og börn í Cherbourg, 18. ágúst 1857.
Helena prinsessa, 17. apríl 1862.