Gullfoss siglir framhjá Surtsey

Farþegaskipið Gullfoss siglir framhjá Surtseyjargosinu árið 1963. Mynd: Eimskip.

Gullfoss hætti siglingum 1972 og var síðasta farþegaskip Íslendinga, sem notað var í millilandasiglingum.… [Lesa meira]

Höfði í argentínskri hryllingsmynd

Höfði í Reykjavík prýðir veggspjald fyrir La Casa en la Playa (Húsið á ströndinni), nýja argentínska hryllingsmynd.

Af stiklu kvikmyndarinnar að dæma kemur húsið fræga söguþræðinum ekkert við. Það er líklega einungis notað til að skreyta kynningarefni hennar. Leikstjóri er July Massaccesi. Óðinn Atlason tók ljósmyndina hér að ofan í neðanjarðarlest Buenos Aires.

Efnistök Hússins á ströndinni:

Abel kemur… [Lesa meira]

Borg háhýsanna, 1924

Þýski arkitektinn Ludwig Hilbersheimer teiknaði borg háhýsanna, „Entwurf für eine Hochhausstadt,” 1924.

Enn er deilt um hvort myndirnar séu af útópískri eða dystópískri borg.

Hvað finnst þér?

[Lesa meira]

Lögreglan, 1995

Lögreglan, Eiðistorgi, um 1995. Úr ljósmyndasafni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Forvarnir á Seltjarnarnesi. Eiður Eiðsson eldri og Toyota Corolla.“

Fyrir neðan, lögreglustöðin við Hverfisgötu, ónefndan vetrardag árið 1997.

… [Lesa meira]

„Stritandi vjelarnar í borg framtíðarinnar“: Frá tökum Metropolis, 1926

Hér fyrir ofan fær þýska leikkonan Brigitte Helm sér hressingu við tökur á Metropolis. Þarna er hún í búningi Maschinenmensch, vélmennis í meistarastykki Fritz Lang sem fjallar um dystópíu í framtíðinni.

Metropolis, sem frumsýnd var árið 1927, var ein dýrasta kvikmynd þögla tímans. Hún var ennfremur ein allra fyrsta vísindaskáldsögukvikmyndin í fullri lengd og lagði grunninn fyrir óteljandi myndir… [Lesa meira]

Veiðiþjófurinn Steven Spielberg

Veiðiþjófurinn og illmennið Steven Spielberg fyrir framan bráð sína.

Nei, bara grín. Myndin er frá tökustað Jurassic Park, risaeðlumyndarinnar sem frumsýnd var árið 1993. Tegundin er triceratops eða ýmist horneðla eða nashyrningseðla á íslensku.

Margir féllu fyrir þessu spaugi fyrir nokkrum árum:

This guy thinks it's cool to kill defenceless animals then take a selfie. Jerk.… [Lesa meira]