Áróðursmálaráðuneytið: Indjáninn sem tárast yfir mengun í Ameríku

Vídjó

Árið 1971 sendu bandarísku samtökin Keep America Beautiful frá sér þessa auglýsingu. Við sjáum indjána tárast yfir náttúruspjöllunum og menguninni sem fylgir lífi nútímamannsins.

 

Leikarinn Iron Eyes Cody, sem var af ítölsku bergi brotinn, fór með hlutverk indjánans. Auglýsingin var sýnd í bandarísku sjónvarpi þann 22. apríl, á hinum svokallaða Degi jarðar, og var umdeild á sínum tíma. Þá átti… [Lesa meira]

„Hér sitja menn úti á skyrtunni“: Frábært myndband sýnir Ísland 1938

Vídjó

Hér er myndband sem sýnir land og þjóð á klakanum 1938.

 

Breski sögumaðurinn segir áhorfendum frá ýmsum hliðum Íslands, hann talar um gróðurhús og þvottalaugar. Og hann segir frá furðulegri hefð Íslendinga, sem við höfum kannski gleymt: „Hér situr fólk úti á skyrtunni, jafnvel í köldu veðri.“ Og myndavélinni er beint að mönnum að lesa… [Lesa meira]

Filippus prins á Íslandi sumarið 1964

Vídjó

Sumarið 1964 kom Filippus prins, hertoginn af Edinborg, og eiginmaður Elísabetar II Bretadrottningar til Íslands. Hér sjáum við skemmtilega litmynd frá heimsókninni þar sem hann sést meðal annars á svölum Alþingishússins ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni, forseta Íslands. Prinsinn veifar til pöpulsins að breskum kóngasið.

 

Muna lesendur eftir þessari heimsókn? Leynast þeir kannski í myndskeiðinu? Segið okkur frá.

 

Myndskeiðið… [Lesa meira]

Forseti nýja lýðveldisins Íslands hittir Franklin D. Roosevelt

Vídjó

Lemúrinn heldur áfram að grúska í filmusafni British Pathé í leit að efni tengdu Íslandi. Hér sést stórmerkileg fréttaupptaka frá 24. ágúst 1944. Þar sjáum við Svein Björnsson, forseta hins nýstofnaða íslenska lýðveldis, ganga á fund Franklins D. Roosevelt bandaríkjaforseta. Roosevelt lést úr lömunarveiki tæpum átta mánuðum síðar.

 

Samkvæmt myndbandinu fékk Sveinn góðar móttökur í Hvíta húsinu og… [Lesa meira]

Púertó Ríkó og morðtilræðið við Harry Truman Bandaríkjaforseta

1. nóvember 1950 munaði litlu að Harry S. Truman Bandaríkjaforseti yrði skotinn til bana. Við þurfum að ferðast til Púertó Ríkó til að vita hvers vegna ráðist var á hann.

 

Þann 14. júní 2011 heimsótti Barack Obama eyjuna Púertó Ríkó. Það var fyrsta opinbera heimsókn bandarísks forseta til landsins síðan John F. Kennedy heimsótti það fimmtíu árum áður. Eins og venjan… [Lesa meira]

Þegar Mario Vargas Llosa lamdi Gabriel García Márquez

Rithöfundurinn Gabriel García Márquez frá Kólumbíu er látinn. Hann hlaut Nóbelsverðlaun 1982 og er frægur um allan heim fyrir meistaraverkið Hundrað ára einsemd. Perúski rithöfundurinn Mario Vargas Llosa, sem hlaut Nóbelinn 2010, er ekki síður virtur höfundur.

 

Þeir voru lengi miklir vinir, en árið 1976 gerðist eitthvað. Þeim lenti saman. Og á kvikmyndasýningu í Mexíkóborg 1976 réðist Vargas Llosa á Márquez og… [Lesa meira]