Laukur, sellerí og gulrætur. L’histoire de Mirepoix

Það getur verið mögnuð upplifun að borða mat. Ekki bara vegna þess að hann seður hungrið og bragðast vel. Stundum er engu líkara en að við getum bragðað á mannkynssögunni, skynjað menningu fjarlægra landa – bara með því að kjamsa á mat.

 

Matur hefur til að mynda gert Gaston Pierre de Lévis ódauðlegan. Og hver er það? Ekki nema von að… [Lesa meira]

Er „Teenage Kicks“ besta lag allra tíma?

Hvað á lagið „Teenage Kicks“ með hljómsveitinni The Undertones sameiginlegt með poppslagaranum „A Good Heart“ með Feargal Sharkey? Við fyrstu sýn er það ekki mikið. „Teenage Kicks“ var tekið upp árið 1978, í hringiðu pönktímabilsins – áhrifavaldar í lagasmíðum eru greinilega hljómsveitir á við The Ramones, The Buzzcocks, já og jafnvel The Sex Pistols. „A Good Heart“ er aftur á… [Lesa meira]

Hvernig byrjaði „Harlem-Shake“ æðið?

Internet tískubólur eru ekki nýjar af nálinni. En það er með hreinum ólíkindum hvernig lagið Harlem Shake með plötusnúðnum Baauer hefur slegið rækilega í gegn. Lagið hefur ekki aðeins slegið í gegn, heldur hefur það verið innblástur fólks um víða veröld til að gera myndbönd af sér dansandi við lagið. Myndböndunum fjölgar enn, en þegar þetta er skrifað telja þau… [Lesa meira]

Geysir um 1910

Geysir um 1900-1920. Magnús Ólafsson tók myndina. Ljósmyndasafn… [Lesa meira]

Geimveruinnrás í Lapplandi! Sjaldséð sænskt sci-fi

Loftsteinn hrapar til jarðar í snæviþakta eyðimörk Lapplands, nyrst í Svíþjóð. Bandarískir jarðfræðingar eru sendir af stað til þess að rannsaka málið, en uppgötva þegar á hólminn er komið að hluturinn sem féll til jarðar er ekki loftsteinn, heldur geimskip. Og úr geimskipinu stekkur risavaxið loðið geimskrímsli, sem ræðst á jarðfræðingana og hrifsar með sér kærustu eins þeirra. Jarðfræðingarnir og innfæddir… [Lesa meira]

Skemmtilegar og skrýtnar eistneskar auglýsingar frá Sovéttímanum

Vídjó

Í þessu myndskeiði sjáum við sjónvarpsauglýsingar frá Eistlandi frá níunda áratugnum. Þá var Eistland, eins og hin Eystrasaltslöndin, hluti af Sovétríkjunum.

 

Eistneska stúdíóið Eesti Reeklamfilm var eitt stærsta auglýsingafirma Sovétríkjanna. „Ljóst er að auglýsingar á tímum kommúnistastjórnarinnar voru ólíkar auglýsingum vestursins í útliti og tilgangur þeirra var ekki sá sami þegar hvorki stór einkafyrirtæki… [Lesa meira]