Edison drap fíl með 6.600 volta riðstraumi

Vídjó

Í byrjun 20. aldar varð fíllinn Topsy þremur mönnum að bana í æðiskasti. Hann hafði þá lengi verið grimmilega misnotaður og píndur af umsjónarmönnum sínum, sem störfuðu fyrir sirkus í New York.

 

Rekstraraðilar sirkusins ákváðu að þetta hættulega dýr skyldi tekið af lífi hið snarasta, og uppfinningamaðurinn frægi, Thomas Alva Edison, bauðst til þess sjá… [Lesa meira]

Mörgæsin sem vildi deyja

Vídjó

Mörgæsin gengur í opinn dauðann. Hún gengur inn að miðju Suðurskautslandinu, þar sem ekkert æti er fyrir hana. Hún gengur þangað ein.

 

Það svarar spurningu þýska kvikmyndagerðarmannsins Werner Herzog til mörgæsasérfræðingsins í myndbandinu. „Er til geðveiki á meðal mörgæsa? Ég reyni að forðast að skilgreina geðveiki, eða óreiðu og ég á ekki við að… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: Svíi þegir

Af hverju prentuðu sænsk yfirvöld þessa teikningu af tígrisdýri í fánalitum í massavís í síðari heimsstyrjöldinni? Það er vegna þess að þetta er orðaleikur. Setningin „En svensk tiger“ hefur tvær merkingar á sænsku: Sænskur tígur og Svíi… [Lesa meira]

Varnarmálaráðherrann, eiturlyfjasalinn og rússneski njósnarinn

Sumarið 1961 var breska varnarmálaráðherranum, John Profumo, boðið í sundlaugarpartí í Cliveden, höfðingjasetri hinnar auðugu Astor fjölskyldu.

 

Þar kynntist hann ungri konu að nafni Christine Keeler en sundlaugapartí sem þessi voru kjörin staður fyrir breska áhrifamenn til að hitta föngulegar konur.  Fljótlega eftir þessi fyrstu kynni hófu þau Profumo og Keeler ástarsamband sem hvorugt þeirra fór sérstaklega leynt með.

… [Lesa meira]

Eina hljóðupptakan með Freud: „Mótspyrnan var mikil og óbil­gjörn“

Vídjó

Austurríski fræðimaðurinn Sigmund Freud (1856–1939) varð heimsþekktur sem brautryðjandi sálgreiningar. Á langri ævi sendi hann frá sér margvísleg skrif um mannshugann sem höfðu varanleg áhrif á vestræna fræðimennsku og heimspeki. Hér má heyra einu hljóðupptökuna af honum að tala.

 

Upptakan var gerð af breska ríkisfjölmiðlinum BBC árið 1938, og Freud mælir því á ensku. Hann… [Lesa meira]

Detroit árið 1991: „Svona á að dansa við Kraftwerk“

Vídjó

Svona á sko að dansa við tónlist Kraftwerk. Þetta er klippa úr goðsagnakenndum dansþætti í kapalsjónvarpinu í Detroit árið 1991. Lagið er Nummern (Numbers) af plötunni Computerwelt (Computer World) frá 1981.

 

Höfum þetta í huga á næstu Iceland Airwaves-hátíð, en Kraftwerk mun mæta á hana, eins og fram hefur komið í… [Lesa meira]