Dauði og eyðilegging á frímúraraflugvelli í Denver

Flugvellir þykja venjulega ekki mjög spennandi staðir. Þeir eru oft frekar tilbreytingalaus rými þar sem þreyttir og stressaðir farþegar reika um langa ganga, bíða eftir tengiflugi eða kaupa Toblerone og áfengi í flúorlýstum fríhöfnum.

 

Stærsti flugvöllur Bandaríkjanna að flatarmáli, alþjóðaflugvöllurinn í Denver í Colorado, virðist við fyrstu sýn ekki vera undantekning. Honum var plantað niður á meðal víðáttumikilla akra á flatlendinu… [Lesa meira]

Rafmagnsbíll náði 100 kílómetra hraða árið 1899

Í sjónvarpsþáttunum um Simpsons-fjölskylduna var látið að því liggja að það væri leynifélag Steinhöggvara (Stonecutters) sem héldi aftur framgangi rafmagnsbílsins. Þar var augljóslega verið að vísa til Frímúrarareglunnar, þó hér sé ekkert fullyrt um afstöðu þess félags til rafmagnsbílsins.

 

Í öllu falli er furðulegt að framgangur rafmagnsbílsins hafi ekki verið meiri á 20. öldinni, ef tekið er tillit til þess að… [Lesa meira]

Hryllingsbælið Ísland: Myndskreytingar í bók Jules Verne

Þessi furðulega mynd af Reykjavík birtist í bókinni Half Hours in the Far North árið 1875, alþýðlegu yfirlitsriti um nyrstu svæði jarðar. Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu.

 

Reykjavík var ef til vill ekki notalegasti bær Evrópu á þessum árum en er þetta ekki yfirdrifið? Umhverfið á þessum guðsvolaða stað líkist Mordor í Hringadóttinssögu eða einhverju öðru helvíti.… [Lesa meira]

Codex gigas: Risastór Biblía djöfulsins

Í litlu, kirfilega læstu herbergi í iðrum Konunglega bókasafnsins í Stokkhólmi er geymd gömul bók sveipuð í hvítt klæði. Þessi gamla bók er ekki bara merkilegust af þeim tugmilljónum bóka á safninu heldur líka með þeim stærri. Codex gigas þýðir einfaldlega risabókin, nafn með rentu því þetta langstærsta miðaldahandrit Evrópu er risastórt: 92 sentimetra langt, 50 sentimetra vítt, 22 sentimetra þykkt… [Lesa meira]

Momofuku Ando: Besti vinur stúdenta um allan heim

Fáir þekkja Momofuku Ando, þrátt fyrir að hann hafi líklega haft meiri áhrif en nokkur annar maður á matarvenjur ungs fólks um allan heim. Momofuku Ando er nefnilega maðurinn sem fann upp „instant-núðlur“ sem við á Íslandi þekkjum sennilega best sem „núðlusúpu“.

 

Momofuku Ando var fæddur árið 1910 í Tævan, sem var þá undir yfirráðum Japana. Hann fluttist ungur að árum… [Lesa meira]

Vísindamenn á Madagaskar uppgötva enn fleiri nýjar lemúrategundir

Lemúrar eru ekki bara bestu dýr í heimi heldur einnig ótrúlega fjölbreyttir. Þrátt fyrir að eyjan Madagaskar í Indlandshafi séu einu heimkynni lemúra eru til meira en hundrað lemúrategundir. Fyrir rúmlega ári síðan sagði Lemúrinn einmitt frá því að dýrafræðingar á Madagaskar hefðu uppgötvað lemúrategund númer 102. Nú hefur enn annar stóratburðurinn orðið í heimi lemúrafræða og tvær lemúrategundir bæst… [Lesa meira]