Sestur eða soss?

Einhverjir kynnu í fljótu bragði halda að hér væri á ferðinni fótósjopp-grín, en svo er ekki. Þetta er sebrildið Eclypse, blendingur hests og sebrahests.  Á ensku kallast slíkar skepnur “zorses” — á íslensku væri þetta ef til vill “sestur”, eða kannski “soss”.

 

Venjulegir hestar og sebrahestar geta ekki afkvæmi í náttúrunni, en fyrir tilstilli manna hafa graðhestar verið settir upp á sebrahryssur gegnum tíðina og úr… [Lesa meira]

Þegar stærsta spendýr jarðar fannst í fjörunni

Vídjó

Í þessum fyrirlestri segir Þorvaldur Þór Björnsson hamskeri á Náttúrufræðistofnun Íslands frá því þegar hann sá um að verka hræ af steypireyði sem rekið hafði á land á Skaga síðsumars árið 2010.

 

Hvalrekinn var einstakt tækifæri því ekki eru til margar beinagrindur af steypireyðum í heiminum, en þessi stærsta spendýrategund jarðar eru því… [Lesa meira]

Valur-KR upp á líf og dauða

Ég rata í hug­anum að þessum steini þó ég sé í ann­arri heims­álfu og það sé lið­inn langur tími frá því ég var í kirkju­garð­inum gamla við Suðurgötu. En ég þvæld­ist mikið í honum þegar ég var lít­ill. Heilinn ræður við þetta og dregur upp mynd af kirkju­garð­inum, þó eflaust sé kortið kolrangt á sumum stöðum.

 

Legsteinninn er stór og stæði­legur,… [Lesa meira]

Furðulegar framtíðarspár á heimssýningunni í New York árið 1964

Í sýningarskála General Motors á heimssýningunni í New York árið 1964 mátti finna sýningu sem sýna átti þær tækninýjungar sem biði mannkynsins í nánustu framtíð.

 

Gestum sýningarinnar var boðið að sitja í sætum sem fest voru á teina og þeim rennt um sýningarsalinn. Rödd hljómaði svo úr hátalara sem var í höfuðpúðanum og lýsti því sem sýningin hafði að… [Lesa meira]

Lemúrinn fær andlitslyftingu: Nýr og endurbættur vefur

Lemúrinn.is hefur fengið andlitslyftingu og vefurinn er nú betri í sniðum. Notendur snjallsíma og spjaldtölva geta nú notið Lemúrsins mun betur því vefurinn er nú með svokallaða skalanlega vefhönnun (e. responsive design). Það þýðir að efnið aðlagar sig að umhverfinu og stærð skjásins.

 

Betra aðgengi er nú að eldri greinum í Greinasafninu og allstaðar á síðunni er reynt að koma… [Lesa meira]

Vondi gaurinn úr Karate Kid var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir stuttmynd

Muna ekki allir eftir Johnny Lawrence, leiðtoga hinnar illræmdu Cobra Kai klíku sem lagði Daniel LaRusso í einelti?

 

Leikarinn sem lék Johnny Lawrence heitir William Zabka. Eftir að The Karate Kid sló í gegn árið 1984 átti Zabka nokkurri velgengni að fagna. Hann fékk hlutverk í eðalgrínmyndinni Back To School með Rodney Dangerfield og einnig kvikmyndinni European Vacation með Chevy Chase.… [Lesa meira]