Viðtöl fyrir aftöku: Rætt við dauðadæmda morðingja í kínverskum spjallþætti

Vídjó

Á hverju laugardagskvöldi á árunum 2006-2012 horfðu milljónir Kínverja á sjónvarpsþáttinn Viðtöl fyrir aftöku. Í þessum ótrúlega spjallþætti ræddi fréttakonan Ding Yu við dauðadæmda morðingja. Hugsunin var að morðingjarnir fengju þar tækifæri til að útskýra voðaverk sín og til að flytja síðustu skilaboðin til umheimsins. Stundum fóru viðtölin fram rétt fyrir aftökur og… [Lesa meira]

Nýjum vegi fagnað, 1898

Íbúar í Eksingedalen í Noregi fagna nýjum vegi í Flatekval árið 1898. Mynd: Fylkesarkivet i Sogn og… [Lesa meira]

Argentavis magnificens: Stærsti fugl sögunnar var frá Argentínu

Argentavis magnificens eða hinn mikli argentínski fugl var gríðarstór fuglategund sem lifði fyrir um sex milljónum ára síðan á sléttum Argentínu og við rætur Andesfjallanna. Þetta er stærsta tegund fljúgandi fugls sem fundist hefur í heiminum.

 

Vænghaf fuglsins var um sjö metrar, hæð 170-200 cm og þyngd 70 kíló! Með öðrum orðum var argentavis ekki ósvipaður í stærð og lítil flugvél.… [Lesa meira]

Fórnarlömb vesturvígstöðvanna

Fyrri heimsstyrjöldin 1914-1918  kostaði níu milljónir manna lífið. Stríðið þurrkaði út heila kynslóð af ungum mönnum og var á þeim tíma mannskæðasta styrjöld sögunnar. Harðast var barist á vesturvígstöðvunum, þar sem risastórir herir Frakka, Breta, Þjóðverja og að lokum Bandaríkjamanna tókust á innan um stórskotahríð, sinnepsgas og vélbyssuhreiður.

 

Lemúrinn hefur áður birt litljósmyndir frá vesturvígstöðvunum eftir franska ljósmyndarann Jules… [Lesa meira]

Eitursvalir Ísfirðingar á þriðja áratugnum

Hefur ekki ungt fólk alltaf gaman af því að skemmta sér og klæða sig upp? Hvort sem það er í New York, Reykjavík eða á Ísafirði og hvort sem það er 2013 eða 1925.

 

Þessar myndir sýna ungt og glæsilegt fólk á Ísafirði, líklega um 1920-1930. Þær eru teknar úr safni Ingimundar Guðmundssonar (1893-1973), vélsmiðar og áhugaljósmyndara. Ingimundur flutti til Ísafjarðar frá… [Lesa meira]

Ólafur Gottskálksson, knattspyrnumaður frá Benín

Áhugamenn um skoska boltann ráku eflaust upp stór augu árið 1998 þegar ný útgáfa af hinum geysivinsælum fótboltamyndum frá ítalska fyrirtækinu Panini kom út. Því einhver ruglingur varð hjá liði Hibernian og íslenski markvörðurinn Ólafur Gottskálksson hafði breyst í knattspyrnumann frá ríkinu Benín í Afríku. Og hinn benínski Jean-Marc (Jimmy) Adjovi-Bocco hafði breyst í Oli Gottskálksson.

 

Myndirnar birtust á… [Lesa meira]