Flannan-eyjur eru örlítill eyjaklasi sem tilheyrir Ytri-Suðureyjum í Skotlandi — varla meira en sker og hólmar sem rísa upp úr Norður-Atlantshafi.

 

Þar eru engir mannabústaðir og engin mannvirki að finna fyrir utan það að á einni eyjunni, þeirri stærstu, stendur viti. Í þessum vita gerðist dularfullur atburður í desembermánuði árið 1900.

 

Í miklu illviðri slökknaði á vitanum og þrír vitaverðir hurfu sportlaust. Hrifsaði sjórinn mennina til sín – eða gerðist eitthvað ennþá verra á þessum afskekkta stað?