Vivian Kubrick er dóttir Stanley Kubrick, leikstjórans fræga. Hún aðstoðaði föður sinn við gerð margra meistarastykkja frá unga aldri og fæst í dag við kvikmyndagerð og tónsmíðar. Í dag heldur hún úti Twitter síðu. Þar birti hún um daginn nokkrar merkilegar myndir af sjálfri sér við tökur á hinum ýmsu Kubrick-myndum gegnum árin.

Vivian í EMI-kvikmyndaverinu árið 1980. Hún fékkst þar við klippingu á heimildarmynd um gerð kvikmyndarinnar The Shining.

Stanley Kubrick og Vivian á settinu við tökur á Full Metal Jacket. Neðri myndin sýnir Vivian ásamt hundi sínum Fanny. Árið er 1986.

Vivian á Korova Milk Bar settinu fyrir kvikmyndina A Clockwork Orange, árið 1969. Vivian ku hafa skorið út stafina á veggnum í bakgrunni.