Einhverjir kynnu í fljótu bragði halda að hér væri á ferðinni fótósjopp-grín, en svo er ekki. Þetta er sebrildið Eclypse, blendingur hests og sebrahests. Á ensku kallast slíkar skepnur „zorses“ — á íslensku væri þetta ef til vill „sestur“, eða kannski „soss“.
Venjulegir hestar og sebrahestar geta ekki afkvæmi í náttúrunni, en fyrir tilstilli manna hafa graðhestar verið settir upp á sebrahryssur gegnum tíðina og úr verða þessar kynlegu skepnur. Fjöldi krómósóma í hrossum og sebrahestum er ekki sá sami, og því eru sestarnir sterílir.
Erfitt er að fá venjulega hesta til þess að fara upp á sebrahryssur, enda eru sebrahestar villt dýr og mökunarhegðun þeirra ruddaleg miðað við tamda hesta.
Myndskeiðið hér sýnir Eclypse í dýragarðinum í Þýskalandi: