Ef öllu gulli sem mannkynið hefur gegnum tíðina grafið upp úr jörðinni yrði safnað saman á einn stað þá myndi það rýmast í 20 x 20 x 20 metra teningi og vega um 170 þúsund tonn, andvirði rúmlega 10 þúsund milljarða bandaríkjadollara (eða um 1.300.000.000.000.000 íslenskar krónur).
Þáttagerðarmenn fengu sérlegan aðgang að gullhvelfingunni undir Englandsbanka og í myndbandinu hér að ofan fáum við að sjá rúmlega 300 tonna gullforða bankans í allri sinni dýrð.
Gullforði Seðlabanka Íslands er u.þ.b. 2 tonn, eða um 6 grömm á hvern Íslending. Það gerir hann að 95. stærsta opinbera gullforða heims, stærri en gullforðar Albaníu, Jemens og Hondúras.
Til gamans má sjá hér að neðan lista yfir 20 stærstu gullforða heims og heildarmagnið af gulli sem þeir geyma (í tonnum):
8.133 Bandaríkin
3.391 Þýskaland
2.814 Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS)
2.451 Ítalía
2.435 Frakkland
1.054 Kína
1.040 Sviss
937 Rússland
765 Japan
612 Holland
557 Indland
502 Evrópski seðlabankinn (ECB)
423 Tævan
382 Portúgal
363 Venesúela
323 Sádí-Arabía
314 Tyrkland
310 Bretland
286 Líbanon
281 Spánn
Heimild: World Gold Council, World Official Gold Holdings, January 2013.