Árið 1996 hannaði pólski listamaðurinn Zbigniew Libera sjö Legó-sett sem sýna útrýmingarbúðir nasista. Þrjú eintök voru gerð af settunum og var eitt þeirra selt Nýlistasafni Varsjár fyrir 55 þúsund evrur. Verkið hefur síðan vakið sterk viðbrögð á sýningum víðs vegar um heiminn.
Yfirlit yfir fangabúðirnar. Þær eru umluktar rafmagnsgirðingu og tveimur varðturnum. Fangar ganga í gegnum hliðið. Ekki mun þó standa þar ,,Arbeit macht frei“ líkt og í Auschwitz og Dachau.
Soltnir fangar bak við rafmagnsgirðingu. Fangarnir eru beinagrindur úr sjóræningja-legói.
Fangarnir — sonderkammando — látnir bera og grafa líkin. Fjöldagröf efst, og svo sjást líkofnar til vinstri.
Henging. Varðmenn leiða fanga. Varðmennirnir eru úr löggu-legói, með kylfur og mótorhjólahjálma.
Viðbótarsett. Þarna eru fangar tilraunadýr hjá lækni — Legó-Mengele? Legó-Aribert-Heim? — eða að minnsta kosti fórnarlömb einhvers konar pyntingarmeistara.
Líkbrennslukofinn með skorsteinum.
Stafli af líkum og órakaður vörður.
Aukapakkar fyrir helfarar-legó.
Nánar má lesa um pólska listamanninn Zbigniew Libera á þessari síðu (enska).
Auk þess er hér ítarleg listræn greining á helfarar-legóinu, ásamt sögulegu samhengi þess (enska).