Skjalasafn New York-borgar hefur nýlega afsalað höfundarrétti á rúmlega átta hundruð þúsund ljósmyndum sem sýna allar hliðar stórborgarinnar á tuttugustu öld.
Lemúrinn birti örfáa gimsteina úr þessu safni í gær en hér birtast nokkrar frábærar ljósmyndir í viðbót.
Öllum er frjálst að skoða þetta gífurlega umfangsmikla myndasafn á heimasíðu skjalasafnsins. Ljósmyndirnar sem hér birtast voru valdar af blaðamanni The Atlantic.
Smellið á myndirnar til að stækka þær.
New York í síðari heimsstyrjöldinni: Maður les dagblað á 6th Ave. og 40th St. Á forsíðunni stendur „Her nasista nú 75 mílum frá París“. 18. maí 1940. (AP Photo/NYC Municipal Archives)
Yankee Stadium, hafnaboltaliðið Yankees í miðjum leik. Mynd tekin einhvern tímann á árunum 1935-1947. (NYC Municipal Archives)
Loftmynd af Frelsisstyttunni í höfninni í New York, 27. janúar 1965.
Barnungir blaðasalar, jólin 1906. (Eugene de Salignac/NYC Municipal Archives
Hayden Planetarium í American Museum of Natural History. (NYC Municipal Archives)
Tveir hestar draga hreinsivagn. (NYC Municipal Archives)
Baðströndin á Coney Island, 1922.
Hjólafélag, 1894. (NYC Municipal Archives)
Verkamaður á Brooklyn Bridge, 19. nóvember 1928. (Eugene de Salignac/NYC Municipal Archives)
Manhattan í myrkri, ca. 1935-1941. (NYC Municipal Archives)
Snúrur, um 1935-1941. (NYC Municipal Archives)
Manhattan Bridge í smíðum. 1909. (Eugene de Salignac/NYC Municipal Archives)