Hér fyrir ofan snertir hópur blindra barna uppstoppaðan rostung til að þau geti loksins „séð“ hvernig hann lítur út.
Árið 1913 skipulagði John Alfred Charlton Deas, safnstjóri á aðalsafninu í borginni Sunderland á Norður-Englandi, sérstaka dagskrá fyrir blind börn. Hann bauð börnum úr Sunderland Council Blind School á sérstaka „snertingardaga“ þar sem safngripirnir voru skoðaðir vandlega með snertiskyninu einu.
Hugmyndin sló í gegn, börnin voru alsæl og safnstjórinn fór fljótlega að bjóða fullorðnu blindu fólki á samskonar snertingardaga.
Sem betur fer voru teknar ljósmyndir af þessum undursamlegu stundum í Sunderland Museum sem varðveittar eru í sýslusafni Tyne og Wear.
„Starf J.A. Charlton Deas hjá Sunderland Museum var ákaflega aðdáunarvert. Brennandi áhugi hans fyrir menntun blindra og eldmóður þegar hann aðstoðaði blind börn hafði mikil áhrif á heimsmynd þeirra,“ segir í umsögn safnsins um þessar 99 ára gömlu myndir.
![Ljónið Wallace.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5863136174_8fb2329c51_b.jpg)
Hópur blindra barna úr blindraskólanum í Sunderland með kennara sínum í Sunderland Museum. Sex drengir sitja á ljóninu Wallace, krúnudjásni náttúruminjadeildar safnsins.
![Krókódíllinn.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5863211238_5456279c1b_b.jpg)
Blindir krakkar nota snertiskynið til að kynnast krókódílum og skjaldbökum.
![Fuglarnir.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5862676487_340784b552_b.jpg)
Blind stúlka uppgötvar furður fjaðurhamsins.
![Ísbjörninn.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5877217084_6ea04096bd_o-1.jpg)
Hvernig skyldu ísbirnir vera? Mjög stórir greinilega!
![Fullorðna fólkið.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5863367244_8b94786087_o.jpg)
Í kjölfar vinsælda dagskrár Sunderland Museum var blindum á fullorðinsaldri boðið á safnið fyrir samskonar dagskrá. Hér er beinagrind af manni kynnt til sögunnar.
![Beinagrindin.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5862889133_5f8e1ce3bb_b.jpg)
Maður skoðar beinagrindina. Hann „sér“ með því að snerta .
![Flugvélin](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5862687299_d96cf6a92a_o.jpg)
Flugvélarmódel rannsakað gaumgæfilega.
![Hjálmar.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/brynjur.jpg)
Brynvarin blind börn.
![Byssur](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5876725727_d9b29d596d_o.jpg)
Blindir herramenn kanna skotvopnin á safninu.
![Skammbyssurnar](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5876683051_1d51e1a85f_o.jpg)
Furðulegar í laginu þessar byssur.
![Báturinn](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/kanó.jpg)
Kennarinn og blindu börnin þreifa á forsögulegum kanó
![Búdda](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/budda.jpg)
Þau kynntust líka sjálfum Búdda.
![Dýrin](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5863130172_cbcd4f53cb_b.jpg)
Hluti dýranna sem blindu börnin fengu að skoða.
![Myndarlegur hópur](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/5863218996_905f66b4dc_b1.jpg)
Á söfnum leynist ýmislegt skemmtilegt.