Suðurafríkumaðurinn Spoek Mathambo koverar Joy Division. Myndbandið er tekið upp í Höfðaborg og leikstýrt af Pieter Hugo og Michael Cleary.
Sean Kuti, sonur Fela, og sveitin Egypt 80. Leikstýrt af Juliet Rios and Gabe Imlay.
Portúgalska kuduro-bandið Buraka Som Sistema. Myndbandið er tekið upp á São Vicente í Grænhöfðaeyjum og leikstýrt af João Pedro Moreira og Carlos Afonso.
Suðurafrísku rappararnir Driemanskap. Myndbandið er tekið upp í Höfðaborg og leikstýrt af Anne-Sophie Leens.
‘Africa’ með kenísku rappsveitinni X-Plastaz. Myndbandið er tekið upp í Arusha og á Sansibar.
Tumi frá Johannesburg í Suður-Afríku. Myndbandið var gert til styrktar samtökum gegn kynbundnu ofbeldi. Leikstýrt af Teboho Mahlatsi.
Kommando Obbs frá Lesótó. Leikstýrt af Pheello Makosholo.
Það var eitt af uppáhaldsbloggum Lemúrsins, Africa is a Country, sem tók saman þennan lista af sínum uppáhalds tónlistarmyndböndum ársins. Þar má sjá fleiri myndbönd, tónlist og umfjöllun.