Það var reiðarslag fyrir marga þegar fréttist í byrjun maí að Adam Yauch, einn af stofnendum rappsveitarinnar Beastie Boys frá New York væri látinn 47 ára að aldri úr krabbameini.
Enda er Beastie Boys ein áhrifamesta hljómsveit síðustu áratuga, og afar vinsæl allt frá því er drengirnir slógu fyrst í gegn með frumlegri tónlist og textum á níunda áratugnum.
Beastie Boys árið 1986.
Hér skyggnumst við aftur í fortíðina — alla leið til Reaganáranna í Bandaríkjunum þegar Beastie Boys voru nýbúnir að slá í gegn. Árið 1986 var í settinu hjá Opruh [Lesa meira …]



















