Internet tískubólur eru ekki nýjar af nálinni. En það er með hreinum ólíkindum hvernig lagið Harlem Shake með plötusnúðnum Baauer hefur slegið rækilega í gegn. Lagið hefur ekki aðeins slegið í gegn, heldur hefur það verið innblástur fólks um víða veröld til að gera myndbönd af sér dansandi við lagið. Myndböndunum fjölgar enn, en þegar þetta er skrifað telja þau… [Lesa meira]
Geimveruinnrás í Lapplandi! Sjaldséð sænskt sci-fi
Loftsteinn hrapar til jarðar í snæviþakta eyðimörk Lapplands, nyrst í Svíþjóð. Bandarískir jarðfræðingar eru sendir af stað til þess að rannsaka málið, en uppgötva þegar á hólminn er komið að hluturinn sem féll til jarðar er ekki loftsteinn, heldur geimskip. Og úr geimskipinu stekkur risavaxið loðið geimskrímsli, sem ræðst á jarðfræðingana og hrifsar með sér kærustu eins þeirra. Jarðfræðingarnir og innfæddir… [Lesa meira]
Skemmtilegar og skrýtnar eistneskar auglýsingar frá Sovéttímanum
Í þessu myndskeiði sjáum við sjónvarpsauglýsingar frá Eistlandi frá níunda áratugnum. Þá var Eistland, eins og hin Eystrasaltslöndin, hluti af Sovétríkjunum.
Eistneska stúdíóið Eesti Reeklamfilm var eitt stærsta auglýsingafirma Sovétríkjanna. „Ljóst er að auglýsingar á tímum kommúnistastjórnarinnar voru ólíkar auglýsingum vestursins í útliti og tilgangur þeirra var ekki sá sami þegar hvorki stór einkafyrirtæki né… [Lesa meira]
„Vakna þú íslenska þjóð“: Nasistaáróður á íslensku frá útvarpi Berlín árið 1944
Óþekktur Íslendingur les áróðursskilaboð frá útvarpi Þriðja ríkisins 10. desember 1944. Nasistar fluttu áróður á ýmsum tungumálum með útvarpsbylgjum sínum og voru skilaboð flutt á íslensku um nokkurt skeið.
Útsendingar byrjuðu svona: „Hér er Berlín! Hér er Berlín! Þýskaland útvarpar daglega á íslensku frá kl. 1745 til 18 samkvæmt íslenskum tíma.“
Upptakan er fengin af vef… [Lesa meira]
Ungi saxófónleikarinn Bill Clinton
Hér sést ungur Bill Clinton með saxófón.
Clinton var ríkisstjóri Arkansas-fylkis 1983-1992 og svo forseti bandaríkjanna 1993-2001. Í sjálfsævisögu sinni lætur hann eftirfarandi orð falla um hljóðfæraleik sinn:
Á mínu sextánda ári ákvað ég að gerast þátttakandi í opinberu lífi og sækjast eftir kjöri sem fulltrúi þjóðarinnar. Ég elskaði tónlist og hélt að ég gæti orðið mjög góður, en ég… [Lesa meira]
Síða 156

