Ein merkasta hreyfing í breskri listasögu er félagsskapur hinna svokölluðu „Forrafaelíta,“ eða The Pre-Raphaelite Brotherhood. Félagsskapurinn var formlega stofnaður byltingarárið mikla 1848 og voru meðlimir hópsins jafnt myndlistarmenn, myndhöggvarar, skáld og gagnrýnendur.
Leiðtogi hópsins var líklega myndlistarmaðurinn og skáldið Dante Gabriel Rosetti, sem var sérstaklega áberandi – en meðal annarra meðlima má nefna myndlistarmennina John Everett Millais og William Holman Hunt.… [Lesa meira]
